Áfrýjun Sion hafnað - Celtic spilar í Evrópudeildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2011 14:28 Úr leik Celtic og Sion í síðasta mánuði. Nordic Photos / Getty Images
Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafnað áfrýjun svissneska félagsins Sion og staðfestir að Celtic muni taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA. Sion hafði betur gegn Celtic í forkeppni Evrópudeildarinnar í síðasta mánuði. Knattspyrnusamband Evrópu dæmdi hins vegar Celtic sigur í viðureignunum þar sem að Sion notaði ógjaldgenga leikmenn í leikjunum. Fyrir þremur árum var Sion sett í félagaskiptabann fyrir að semja ólöglega við egypska markvörðinn Essam El-Hadary. Síðan þá hafa dómstólar í Sviss úrskurðað að félagið braut engar reglur og notaði Sion því fimm leikmenn í leikjunum sem hafa verið keyptir á undanförnum þremur árum. Knattspyrnusamband Evrópu tók hins vegar ekki mark á úrskurði svissneska dómstólsins og dæmdi því leikmennina ólöglega. Forráðamenn Sion héldu hins vegar áfram að reka málið fyrir svissneskum dómstólum sem enn og aftur dæmdu liðinu í hag. Málinu var einnig áfrýjað til UEFA sem hefur nú staðfest á heimasíðu sinni að áfrýjuninni hafi verið hafnað. UEFA mun svo síðar í dag tjá sig um úrskurð dómsyfirvalda í Sviss. Celtic mætir Atletico Madrid í fyrstu umferð riðlakeppninnar á fimmtudaginn.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri Þróttur - Fram | Þurfa að svara fyrir afhroð síðustu umferðar Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Stjarnan - Þór/KA | Akureyringar á uppleið „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Hilmir fljótur að finna skotskóna í Tékklandi Sjá meira