Emil Hallfreðsson skoraði mark Hellas Verona sem gerði 1-1 jafntefli við Nocerina í ítölsku B-deildinni í kvöld. Markið skoraði hann á 76. mínútu og tryggði sínum mönnum þar með stig á útivelli.
Þetta er annar leikurinn í röð sem Emil skorar en alls hefur hann skoraði fjögur mörk í bæði deild og bikar með Hellas Verona sem er í tólfta sæti deildarinnar með þrettán stig eftir ellefu leiki.
Emil hefur byrjað alla leiki tímabilsins til þessa og spilað í þeim flestum allar 90 mínúturnar. Liðið hefur þó leikið fimm leiki í röð í deildinni án sigurs en Torino er á toppi deildarinnar með 26 stig og er enn ósigrað.
Emil skoraði í öðrum leiknum í röð
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mest lesið



John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“
Íslenski boltinn

Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk
Körfubolti





