Magnús Þór: Algjörir klaufar, asnar og aular að tapa þessum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2011 09:00 Magnús Þór Gunnarsson. Mynd/Hjalti Þór Vignisson
Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflvíkinga, var ískaldur þegar Keflavík tapaði 74-75 á móti Grindavík í úrslitaleik Lengjubikarsins í í DHL-höllinni í gær. Magnús Þór skoraði 11 stig en níu þeirra komu á vítalínunni og hann klikkaði á öllum átta þriggja stiga skotum sínum í leiknum. „Við klúðruðum þessu því við skitum á okkur í lokin. Við vorum allir skíthræddir síðustu fimm mínúturnar. Við vissum alveg hvað við áttum að gera því við vorum búnir að gera það í 35 mínútur. Þetta var bara fáranlegur endir," sagði Magnús Þór en Grindavík vann lokakafla leiksins 17-7. „Við spiluðum fína vörn á þá og þeir skoruðu bara 75 stig. Leikurinn okkar í heildina var ekki góður og við vorum algjörir klaufar, asnar og aular að tapa þessum leik," sagði Magnús en ekkert lið hefur verið eins nálægt því að vinna Grindvíkinga að undanförnu. „Þetta Grindavíkurlið er ekkert ósigrandi ekki frekar en neitt annað lið í heiminum. Það kemur að því að þeir tapa og þá kemur örugglega taphrina hjá þeim. Við bíðum bara spenntir eftir því og þeir eru algjörlega ekki ósigrandi," sagði Magnús. „Við eigum inni besta leikstjórnandann á landinu og höfum ekki neinar áhyggjur af neinu. Við vorum bara aular að tapa þessum leik og núna þurfum við bara að gíra okkur upp fyrir fimmtudaginn á móti Njarðvík," sagði Magnús.
Dominos-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Fleiri fréttir Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjá meira