Gylfi kom inn á sem varamaður í sigurleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. janúar 2011 16:28 Ryan Babel í leiknum gegn Schalke í dag. Nordic Photos / Bongarts
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 84. mínútu er Hoffenheim vann góðan 1-0 útisigur á Schalke í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Isaac Vorsah skoraði eina mark leiksins með skalla af stuttu færi strax á fjórðu mínútu leiksins. Ryan Babel var í byrjunarliði Hoffenheim og var tekin af velli í blálokin. Þetta var fyrsti sigur Hoffenheim í þýsku deildinni í síðustu sjö leikjum liðsins en liðið vann síðast 4-0 sigur á Frankfurt í lok nóvember. Hoffenheim er nú í áttunda sæti deildarinnar. Dortmund er enn með ellefu stiga forystu á toppi deildarinnar eftir 3-0 útisigur á Wolfsburg sem hefur verið í frjálsu falli í Þýskalandi. Bayern München vann 3-1 sigur gegn Bremen á útivelli eftir að hafa lent 1-0 undir. Per Mertesacker kom Bremen yfir í upphafi síðari hálfleiks en Arjen Robben jafnaði metin um miðbik síðari hálfleiksins. Mertesacker skoraði svo sjálfsmark á 76. mínútu áður en Miroslav Klose innsiglaði sigurinn með marki fjórum mínútum fyrir leikslok. Klose kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. Þetta var fyrsta deildarmark Klose á leiktíðinni en hann skoraði einnig mark fyrir Bayern í Meistaradeild Evrópu í september síðastliðnum. Hann er þekktari fyrir að skora fyrir landsliðið en hann hefur skorað sex mörk með þýska landsliðinu síðan að tímabilið hófst í Þýskalandi. Bayern komst upp í fjórða sæti með sigrinum og upp fyrir Hannover sem tapaði, 2-0, fyrir Leverkusen í gær. Úrslit dagsins: Wolfsburg - Dortmun 0-3 Bremen - Bayern 1-3 Nürnberg - Hamburg 2-0 Schalke - Hoffenheim 0-1 St. Pauli - Köln 3-0
Þýski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjá meira