Óskar plataði Markús Mána í skóna – Líklega eini leikur vetrarins Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. febrúar 2011 17:26 Markús Máni Michaelsson. Mynd/Anton
Stórskyttan og fyrrverandi landsliðsmaðurinn Markús Máni Michaelson reif fram skónna og lék með Val gegn Fram í undanúrslitum Eimskipsbikarsins í handbolta í dag. Þetta var fyrsti leikur Markúsar með Val í vetur og líklega sá eini. Hann lék aðeins í vörninni hjá Val í dag og stóð sig með prýði. Hann barði vel frá sér og var fokinn útaf með tveggja mínúta brottvísun eftir tæplega tveggja mínúta leik. Markús fann sig betur í vörninni eftir því sem á leikinn leið en Valsmenn unnu frábæran sigur, 33-31, eftir framlengdan leik. Óskar Bjarni Óskarsson var ánægður með frammistöðu Markúsar í dag sem hefur æft reglulega með liðinu að undanförnu. „Markús er búinn að vera að æfa með okkur einu sinni, tvisvar í viku undanfarin tvö ár. Vegna vinnu þá getur hann ekki verið í þessu með okkur að fullu en ég náði að plata hann til að spila þar sem nokkrir leikmenn voru ólöglegir hjá okkur í dag. Það gekk upp í dag en hefði alveg getað farið til andskotans. Hann er í hörkuformi og barði vel frá sér í dag," sagði Óskar Bjarni en mun hann leika fleiri leiki með Val í vetur? „Ég reikna ekki með því að hann leiki meira með okkur í vetur þar sem hann verður mikið fjarverandi á næstunni," sagði Óskar en það er aldrei að vita nema að það kítli Markús Mána að leika úrslitaleikinn í bikarnum í lok febrúar.
Íslenski handboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira