

Hatur punktur is
Hatrið einkennir sum blaðaskrif um þessar mundir, jafnvel heilu útvarpsstöðvarnar og sjónvarpsþættina að sögn að ekki sé minnst á bloggskólpið. Þetta er alvarlegt vegna þess að þjóðin þarf að finna farsæla niðurstöðu með samtölum en ekki öskrum. Þetta er brýnna nú eftir hrunið en nokkru sinni fyrr.
Málaflokkarnir sem þurfa heiðarlega opna og íhugula umræðu eru hvarvetna. Einn er stjórnskipun landsins sem er í mikilli óvissu um þessar mundir. Vilji er til að sameina hugina til endurbóta, en hverjar eiga endurbæturnar að verða? Til að vita það þarf fólk að tala saman. Það þarf að finna leið sem sameinar hina nýju möguleika lýðræðisins á fésbókunum og internetinu því sem er óhjákvæmilegt til að tryggja skýrar og markvissar niðurstöður umræðunnar. Það þarf að skapa frelsi til þess að tala og gera tillögur en líka frelsi til að komast að niðurstöðum. Samfélag verður aldrei leitt til farsældar öðru vísi en með niðurstöðum eftir eðlileg og opin skoðanaskipti. Annars endar umræðan í tómagangi og vonbrigðum. Nú virðist loksins samstaða um að opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur sem við mörg okkar höfum barist fyrir áratugum saman. Þjóðin virðist vilja að þau mál verði ekki í höndunum á einum manni og þessi eini maður segist reyndar vera þreyttur á því að hafa svona ferlega mikla ábyrgð.
Annar málaflokkur sem þarf að ræða vel eru atvinnumál. Þar virðast sumir halda að eina lausnin sé fólgin í því að byggja sem flest álver. Þó liggur fyrir að það hentar ekki orkulindum okkar. Þá er að horfast í augu við það. Hatursumræða um einstaklinga skapar ekki atvinnu. Þeir sem þekkja atvinnuleysi sjálfir eða úr fjölskyldum sínum vita að það er alvarlegt og sárt fyrir þá sem því hafa kynnst. Það leysir ekki vanda þeirra að rækta hatrið. Nú vill svo til að umræðan um atvinnumál virðist opnari fyrir samstöðu um þessar mundir en nokkru sinni fyrr. Það eru ekki lengur alvarlegar deilur um einkaeign eða félagslega eign á fyrirtækjunum. Það eru ekki deilur um útlent eða innlent eignarhald. Það er deilt um það hvort þjóðin á að eiga auðlindirnar eða ekki en um það eru reyndar flestir sammála þegar betur er að gáð að þjóðin á að ráða yfir auðlindunum sem eigandi þeirra. Það eru engar alvarlegar deilur um að auðlindanýtingin eigi að vera sjálfbær – eða er það? Það er því engin ástæða til annars en að ætla að samstaða eigi að geta skapast um atvinnustefnuna enda sé auðlindanýtingin sjálfbær.
Atvinnuleysið er ljótasta birtingarmynd auðvaldsþjóðfélagsins. Allir eiga rétt á atvinnu. Auk þess birtist í atvinnuleysinu fráleit sóun. Ekki á atvinnuleysisbótum heldur á arðinum af vinnuafli þeirra sem ekki fá vinnu.
Þriðji málaflokkurinn sem deilt er um eru umhverfis- og auðlindamál. Svo virðist sem margir séu beinlínis andvígir því að ræða þann málaflokk öðruvísi en með stóryrðum um einstaklinga. Allt tryllist þegar reynt er að fá skorið úr lagaóvissu fyrir Hæstarétti. Ekki má gagnrýna það að stórfyrirtæki í orkuframleiðslu borgi fyrir óviðkomandi verkefni eins og gsm-síma og vegi. Greinilegt er reyndar að þeir sem reiðast eru sumir vanir því að ráða og reiðast af því að þeir ráða ekki lengur. En það er lýðræðisleg niðurstaða og þá er að vinna út frá því. Hatursræktun leysir heldur ekki þeirra vanda. Þeir sem vilja fara vel með umhverfið eru að hugsa um barnabörnin sín. Viljum við það ekki öll?
Þannig ber allt að þeim brunni að við eigum að geta náð samstöðu um þau stóru mál sem hér hafa verið nefnd án þess að opna fyrir hatursflóðin. Auðvitað eru ekki allir sammála. Auðvitað eru einhverjir sem vilja rækta hatrið af gömlum vana. En væri þá kannski sterkur leikur að þeir hinir sömu opnuðu sína eigin flóðgátt, eins konar sameiginlegt holræsi, nýjan vef: hatur.is? Því ekki?
Skoðun

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar

Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi
Ingvar Stefánsson skrifar

Raddir fanga
Helgi Gunnlaugsson skrifar

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar