Vill ljúka umbótum fyrir kosningar 11. maí 2011 01:00 Lars Lökke Rasmussen Forsætisráðherra Danmerkur segist ekki hafa hugsað sér að boða til kosninga. gettyimages/afp
Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, segist ekki ætla að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Síðustu daga hefur heyrst sterkur orðrómur þess efnis en á sínum vikulega blaðamannafundi í gær sagði Lökke að slíkt væri honum ekki efst í huga. Hægriflokkarnir sem eru nú við völd hafa verið að rétta úr kútnum í skoðanakönnunum undanfarið þar sem áður rífleg forysta vinstriflokkanna hefur dregist jafnt og þétt saman. Því telja margir stjórnmálaskýrendur að Lökke nýti sér tækifærið og blási jafnvel til kosninga í þessari viku. „Í Danmörku er kosið á fjögurra ára fresti og yfirstandandi kjörtímabili lýkur í nóvember. Það er sá tímarammi sem við höfum til afnota og margt liggur fyrir okkur,“ sagði Lökke á fundinum. Hann sagði að mörg stórmál þyrfti að klára áður en gengið yrði til kosninga. Þar á meðal væri frumvarp um stefnumótun til ársins 2020 þar sem gert væri ráð fyrir miklum breytingum á eftirlaunakerfinu. Meðal annars verður eftirlaunaaldur hækkaður í þrepum en auk þess eru boðaðar breytingar á skattakerfi, námsstyrkjum og þar fram eftir götunum. Gert er ráð fyrir að spara um 47 milljarða danskra króna á tímabilinu til að koma jafnvægi á ríkisfjármálin. Lökke vildi þó ekki útiloka neitt þar sem hann sagði að mögulega yrði nauðsynlegt að boða til kosninga eftir að umbótafrumvarpinu yrði komið í gegn.- þj
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira