Lögreglan komin á sporið í morðmáli 11. maí 2011 00:45 Lýst eftir manni Lögreglan á Fjóni lýsir eftir manni sem gæti gefið mikilvægar upplýsingar um morð á miðaldra hjónum í síðasta mánuði. NordicPhotos/Getty
Lögreglan á Fjóni gæti verið komin á sporið með að leysa dularfullt morðmál sem hefur vakið mikla athygli um alla Danmörku. Lýst hefur verið eftir manni og hafa þegar borist fjölmargar ábendingar. Hjónin Bjarne Johannessen og Heidi Nielsen voru skotin til bana á kvöldgöngu í skógi við Óðinsvé hinn 13. apríl síðastliðinn og hefur lögreglu lítt miðað í rannsókn sinni fram að þessu. Fyrir nokkru fannst þó veski sem stolið hafði verið af Johannessen eftir morðin við húsnæði júdófélags skammt frá vettvangi glæpsins. Sama kvöld og morðin áttu sér stað sást grunsamlegur maður við júdóklúbbinn, en hann sást einnig á upptökum úr öryggismyndavélum við sundlaug sama kvöld. Sundlaugin er einmitt miðja vegu milli morðvettvangsins og júdóklúbbsins. Maðurinn sem lýst er eftir er um þrítugt og var með kringlótt gleraugu og ljósbrúnt kaskeiti. Lögregla leggur áherslu á að maðurinn sé ekki grunaður um morðin, en hún vilji þó ná tali af honum út af málinu.- þj
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira