Þjóðverjar ætla að vera með 30. september 2011 03:00 Andar léttar Angela Merkel Þýskalandskanslari í hópi félaga sinna á þýska þinginu.nordicphotos/AFP
Þýska þingið samþykkti í gærmorgun hlutdeild Þýskalands í stækkun neyðarsjóðs Evrópusambandsins, sem á að styrkja stöðugleika evrunnar með því að koma nauðstöddum evruríkjum til hjálpar. Frumvarpið var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta flestra þingmanna stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar, að undanskildum Vinstriflokknum. Stjórnin hafði hins vegar fyrirfram lýst því yfir að henni væri varla sætt áfram nema atkvæði stjórnarþingmanna einna myndu duga til meirihlutaafgreiðslu frumvarpsins. Alls greiddu 315 þingmenn stjórnarflokkanna tveggja frumvarpinu atkvæði sitt, en á þinginu sitja 620 þingmenn þannig að stjórnin rétt stóðst þetta próf. Stöðugleikasjóðurinn verður stækkaður úr 440 milljörðum evra í 780 milljarða, sem eykur lánagetu sjóðsins til nauðstaddra ríkja úr 250 milljörðum evra í 440 milljarða. Stærstur hluti framlaga evruríkjanna til sjóðsins kemur frá Þýskalandi og verður hlutur Þjóðverja nú aukinn úr 123 milljörðum í 211 milljarða. Jafnframt þessu samþykkti þýska þingið, að sjóðurinn mætti ekki taka á sig neinar nýjar skuldbindingar án fyrir fram samþykkis frá þýska þinginu. Þar með hefur þýska þingið úthlutað sjálfu sér neitunarvaldi um frekari björgunaraðgerðir til handa Grikklandi, sem nú þegar eru í bígerð. Ellefu evruríkjanna sautján hafa þá samþykkt stækkun sjóðsins, en öll verða þau að gefa samþykki sitt áður en stækkunin kemur til framkvæmda.- gb
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira