Segir Pútín mesta stjórnmálaskörung landsins 1. október 2011 01:00 Dmitrí Medvedev Segir ástæðulaust að keppa við Pútín, þar sem skoðanir þeirra eru svo líkar. nordicphotos/AFP „
Pútín er tvímælalaust mesti stjórnmálaskörungur landsins og vinsældir hans mælast meiri,“ sagði Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti í sjónvarpsviðtali, þar sem hann útskýrði þá ákvörðun sína að bjóða sig ekki fram til forseta næsta kjörtímabil. Þeir Vladimír Pútín forsætisráðherra komu sér saman um að Pútín byði sig fram næst, en Medvedev yrði forsætisráðherra hans. Í viðtalinu sagði Medvedev að skoðanir þeirra og markmið færu að mestu saman, en sagði ekkert hæft í því að Pútín hefði bara notað Medvedev til að „passa fyrir sig“ forsetaembættið í eitt kjörtímabil. Á endanum væru það kjósendur sem réðu. „Úr því að afstaða okkar er svona svipuð, ættum við þá að vera að keppa hvor við annan?“ spurði Medvedev og sagðist engan veginn hafa verið að blekkja kjósendur í fyrri yfirlýsingum, þegar hann vildi ekki útiloka það að bjóða sig fram aftur. Pútín var forseti Rússlands í tvö kjörtímabil áður en Medvedev tók við embættinu, en samkvæmt stjórnarskrá má enginn sitja lengur en tvö kjörtímabil samfleytt í embætti forseta. Ekkert bannar Pútín hins vegar að sækjast eftir embættinu á ný eftir að hafa setið hjá í eitt kjörtímabil.- gb
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira