Helgi Jónas góður í því að fela púlið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2011 08:00 Páll Axel Vilbergsson hefur verið aðalskorari Grindvíkingar undanfarin ár en er nú í hlutverki sjötta manns og kemur með reynslu og fjölhæfni inn af bekknum.Fréttablaðið/stefán
Eitt lið hefur borið höfuð og herðar yfir önnur það sem af er tímabilinu í körfunni. Grindavík hefur unnið alla fjórtán leiki tímabilsins, sjö í deild, sex í deildarbikar og Meistarakeppni KKÍ þar sem Páll Axel Vilbergsson skoraði eftirminnilega sigurkörfu. Páll Axel hefur tekið að sér nýtt hlutverk í vetur og spilar nú sem sjötti maður með góðum árangri. „Við erum alveg niðri á jörðinni fullmeðvitaðir um það að við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá. Liðsvörnin okkar er mjög öflug en við erum búnir að vera að vinna í henni í fyrra og svo hefur verið framhald á því á þessu ári,“ segir Páll Axel. Helgi Jónas Guðfinnsson er á sínu öðru ári með Grindavíkurliðið og varnarleikurinn er orðinn aðall liðsins enda er liðið aðeins að fá á sig 71,4 stig í leik í Iceland Express deildinni. „Helgi breytti miklu í varnarleiknum, öllum áherslum og öllu því sem tengist liðsvörn. Hann breytti þessu töluvert og kom inn með ákveðna hugmyndafræði um varnarleik. Það er greinilega að skila sér,“ segir Páll Axel. Grindvíkingar hafa verið með sterkt lið undanfarin ár en ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í fjórtán ár. „Við erum búnir að vera í keppni um þetta í mörg ár og hefur oft vantað aðeins upp á. Við erum búnir að taka einhverja bikarmeistaratitla en höfum alltaf ætlað okkur meira. Það er alltaf hugur í okkur að vinna og það hefur ekkert breyst,“ segir Páll Axel og það er að heyra á honum að það sé ekki búið að reyna nógu mikið á liðið til þessa í vetur. „Leikjaprógrammið okkar hefur verið í auðveldari kantinum til þess að byrja með en eins og deildin hefur verið að spilast hafa liðin verið að reyta stig af hverju öðru. Við höfum verið að halda haus þrátt fyrir enga sérstaka spilamennsku og höfum verið að klára okkar leiki. Ég vil alveg hrósa okkur fyrir það að þótt spilamennskan hafi ekkert verið neitt hundrað prósent erum við að klára okkar leiki,“ segir Páll Axel. Hann nefnir KR-leikinn sem dæmi, en Grindvíkingar fóru þá í DHL-höllina og niðurlægðu Íslandsmeistarana með 85-59 sigri. „KR-ingar áttu mjög slæman dag og þeir hittu mjög illa. Ég er ekki tilbúinn að samþykkja það að við höfum verið eitthvað frábærir í þessum leik. Við komum reyndar tilbúnir í leikinn og það er eitthvað sem við höfum ekki verið að gera mikið af í vetur,“ segir Páll Axel. Helgi Jónas var ekki tilbúinn að láta sína menn slaka á í leiknum á móti KR og var að taka reiðiköstin á sína menn þótt munurinn væri mikill. „Hann er keppnismaður og búinn að vera keppnismaður í mörg ár. Hann er búinn að vera lengi í þessum bransa og það er bara flott mál að hann sé á bakinu á mönnum. Hann gerir kröfur um ákveðna spilamennsku og um ákveðinn árangur. Hann vill að menn leggi sig fram og skili ákveðnum hlutverkum. Það er bara allt í lagi,“ segir Páll Axel. Helgi Jónas er einkaþjálfari og það er fer ekkert á milli mála að hans menn eru í frábæru formi. „Ég er búinn að vera lengi í bransanum og er búinn að fara á nokkrar æfingar hjá mörgum þjálfurum. Hann er með svolítið öðruvísi áherslur varðandi líkamsþjálfun, sem mér finnst nokkuð gott. Æfingar eru byggðar upp á mjög skemmtilegan hátt og eru svolítið öðruvísi en maður hefur gengið í gegnum. Hann er góður í því að fela púlið og setur það í boltaæfingar og spil,“ segir Páll. Páll Axel er að skora 11,7 stig að meðaltali á 24,2 mínútum en Grindavíkurliðið er að vinna þær mínútur sem hann spilar að meðaltali með 16,1 stigi. Hann er efstur í plús og mínus í deildinni, sem þýðir að það gengur best með hann inni á vellinum af öllum leikmönnum deildarinnar. Ólíkt fyrri tímabilum er Páll Axel nú að koma inn af bekknum í stað þess að vera í byrjunarliðinu. „Ég kann ágætlega við þetta. Ég hef tekið tímabil þar sem ég hef skorað mikið og er að leiða liðið í ákveðnum tölfræðiþáttum. Mér finnst ég samt vera að spila betur núna en ég hef gert í mörg ár. Hlutverkið mitt hefur breyst aðeins, við erum komnir með meiri breidd og betri leikmenn. Það er ekkert atriði að byrja leik en það er miklu meira atriði að geta klárað hann,“ segir Páll Axel, en hann var með 22 stig á 17 mínútum í sigri á Haukum í Lengjubikarnum á mánudaginn. „Sóknarleikurinn sem Helgi innleiddi fyrir þetta tímabil hentar mér sérstaklega vel, svona flæðandi sóknarleikur þar sem þarf að lesa leikinn svolítið,“ segir Páll Axel. Hann var meiddur í byrjun tímabilsins og það þróaðist út í að hann byrjaði að koma inn af bekknum. „Það er ágætt að ég haldi áfram að anda ofan í hálsmálið á þeim sem eru byrjunarliðsmenn í liðinu. Ef menn standa sig ekki er ég alltaf tilbúinn,“ sagði Páll Axel að lokum.Gengi Grindavíkur með Pál Axel inni á: 86-80 sigur á Keflavík +17 (Páll Axel skoraði 16 stig sjálfur) 95-76 sigur á Fjölni +10 (5 stig) 87-73 sigur á ÍR +21 (10 stig) 85-65 sigur á Tindastól +16 (15 stig) 83-73 sigur á Val +19 (14 stig) 98-74 sigur á Haukum +12 (11 stig) 85-59 sigur á KR +18 (11 stig)Páll Axel inni á vellinum (samtals): 171 mínútur og 5 sekúndur: Grindavík +113Páll Axel á bekknum: 108 mínútur og 55 sekúndur: Grindavík +6
Dominos-deild karla Mest lesið Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Handbolti Svindlaði á öllum lyfjaprófum Sport „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Enski boltinn Um orðaskak sitt við LeBron James: „Snerist um son hans“ Körfubolti Tatum lækkaði rostann í Lakers og James meiddist Körfubolti Óli Óla í beinni úr klefa eftir sigur á Njarðvík: „Fá okkur að éta og bara njóta“ Körfubolti Liðslæknir Barcelona lést óvænt og leik kvöldsins frestað Fótbolti Everton ekki tapað í síðustu átta deildarleikjum sínum Enski boltinn Fleiri fréttir Tatum lækkaði rostann í Lakers og James meiddist Óli Óla í beinni úr klefa eftir sigur á Njarðvík: „Fá okkur að éta og bara njóta“ Um orðaskak sitt við LeBron James: „Snerist um son hans“ Elvar Már stigahæstur í enn einu tapinu Síðast hafði Ísland aldrei keppt í Eurovision og Pavel var ekki fæddur „Dómarinn var ekki til í eðlileg samskipti“ Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 122-115 | Háspenna lífshætta í ótrúlegum sigri Grindvíkinga Amman fékk að hitta Steph Curry Uppgjörið: Stjarnan - Álftanes 116-76 | Nágrannarnir rassskelltir Skagamenn upp í Bónus deild karla Ármannskonur upp í efstu deild í fyrsta sinn í 65 ár Einn besti dómarinn segir að tillaga á ársþingi KKÍ fari á skjön við leikreglur Ljúft líf hjá Luka, LeBron og Lakers Wroten aftur synjað um dvalarleyfi Uppgjörið: Tindastóll-Keflavík 116-79 | Keflvíkingar rassskelltir á Króknum „Ég get alltaf stólað á Collin“ „Ég veit ekki hvort menn eru farnir að horfa of langt fram á við“ Uppgjör: Höttur-Þór Þ. 103-95 | Fallnir Hattarmenn unnu Þórsara Uppgjörið: Haukar - Valur 81-85 | Kreistu út sigur á síðustu stundu gegn föllnum Haukum Uppgjörið: ÍR-KR 97-96 | Collin Pryor tryggði ÍR-ingum sigur á KR Seinka leik Stólanna og Keflvíkinga Cavs fyrstir til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina Benedikt hættur með kvennalandsliðið GAZ-leikur kvöldsins: Eru Keflvíkingar farnir að gúggla flugmiða? „Keflavík reyndi að kaupa sér Íslandsmeistaratitilinn en þeir eru í tíunda sæti“ Hrun Tindastóls kvenna hélt áfram á móti fallliðinu Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 105-96 | Sjöundi sigur Njarðvíkinga í röð Haukakonur einu stóru skrefi nær deildarmeistaratitlinum NBA stjarnan Dončić kemur ekki til Íslands: „Fáum hann heim seinna“ Pólland valdi Ísland með sér á EM: Lægri reikningur og betri aðstaða Sjá meira