Helmingur árása innan sambands 16. desember 2011 00:30 Í new York Ný rannsókn bandarískra sóttvarnayfirvalda hefur leitt í ljós að umfang heimilisofbeldis þar í landi er meira en áður var talið.Fréttablaðið/AFP
Fimmtungur bandarískra kvenna hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi, samkvæmt nýrri rannsókn bandarísku sóttvarnastofnunarinnar CDC. Helmingur árásanna átti sér stað meðal sambúðarfólks eða kærustupara. Jafnframt kemur fram að fjórða hver kona sem rannsóknin náði til kveðst hafa verið beitt ofbeldi af hálfu maka eða kærasta. Sérfræðingar í heimilisofbeldi segja tölurnar ekki koma sérstaklega á óvart en þó kunni ákveðnir þættir rannsóknarinnar að hafa leitt til hærri talna en áður hafa komið fram. Þannig segjast sjö sinnum fleiri konur hafa orðið fyrir nauðgun eða tilraun til nauðgunar en raunin var í könnun bandaríska dómsmálaráðuneytisins í fyrra. „Þetta er í fyrsta sinn sem við höfum fengið fram þessa tegund áætlunar á tíðni ofbeldis í samböndum,“ er haft eftir Lindu Degutis, starfsmanni CDC. Rannsóknin verður framkvæmd árlega hér eftir. Ekki er gerð tilraun til að staðfesta frásagnir í rannsókninni, sem fengnar eru nafnlaust í símakönnun CDC. Hringt var af handahófi í um 9.000 konur og 7.400 karla.- óká
Fréttir Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Sjá meira