Tindastóll vann ÍR í Seljaskóla | Skoruðu 10 síðustu stigin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2012 20:59 Mynd/Anton
Tindastóll hitaði upp fyrir bikarúrslitaleikinn á móti Keflavík um næstu helgi með því að vinna fjögurra stiga sigur á ÍR, 96-92, í spennandi leik í Seljaskóla í Iceland Express deild karla í kvöld. Tindastóll komst upp í áttunda sætið með þessum sigri. Tindastóll og ÍR voru bæði búin að tapa þremur leikjum í röð en Stólarnir voru sterkari á lokamínútunum í kvöld en þeir tryggðu sér sigur með því að skora tíu síðustu stig leiksins. Tindastóll komst í 15-5 eftir þrjár og hálfa mínútu en ÍR vann þrjár síðustu mínútur fyrsta leikhlutans 9-4 og var 28-27 yfir eftir hann. ÍR var með frumkvæðið lengst af í öðrum leikhlutanum en Tindastóll skoraði fimm síðustu stig hálfleiksins og var 46-42 yfir í hálfleik. Tindastóll hélt frumkvæðinu í þriðja leikhlutanum og var með sjö stiga forskot, 72-65, fyrir lokaleikhlutann. ÍR-ingar virtust ætla að tryggja sér sigurinn í fjórða leikhlutanum þar sem að þeir voru komnir með 6 stiga forskot, 92-86, þegar tæpar tvær mínútur voru eftir. Stólarnir skoruðu hinsvegar tíu síðustu stigin og tryggðu sér mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.ÍR-Tindastóll 92-96 (28-27, 14-19, 23-26, 27-24)ÍR: Nemanja Sovic 24/8 fráköst, Robert Jarvis 19/6 fráköst, Hjalti Friðriksson 19/5 fráköst, Eiríkur Önundarson 16/5 fráköst, Ellert Arnarson 5/6 stoðsendingar, Þorvaldur Hauksson 5, Kristinn Jónasson 2, Níels Dungal 2.Tindastóll: Maurice Miller 22/8 fráköst/7 stoðsendingar, Curtis Allen 18/6 fráköst, Igor Tratnik 17/15 fráköst/3 varin skot, Svavar Atli Birgisson 11, Helgi Rafn Viggósson 11/5 stoðsendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 6, Friðrik Hreinsson 4, Helgi Freyr Margeirsson 4, Hreinn Gunnar Birgisson 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjá meira