Spilavítiskóngurinn einn ríkasti maður heims 21. febrúar 2012 21:08 Sheldon Adelson.
Valdamesti maðurinn í Las Vegas er á lista yfir 10 ríkustu menn Bandaríkjanna. Hann er 78 ára gamall og heitir Sheldon Adelson og eru eignir hans metnar á 25 milljarða dollara, eða sem nemur um 3.000 milljörðum króna. Það jafngildir tvöfaldri landsframleiðslu Íslands árlega. Adelson þykir afar sérlundaður, og lætur ekkert stoppa sig ef hann vill framkvæma eitthvað. Hann segist í ítarlegu viðtali við nýjasta tölublað viðskiptatímaritsins Forbes, þrífast á áhættu og því að taka ákvarðanir sem séu óvæntar. Adelson er mikilvægasti stuðningsmaður Newt Gingrich, sem nú freistar þess að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í Í Bandaríkjunum í nóvember. „Það getur vel verið að ég styðji Gingrich um 10 milljónir (dollara) til viðbótar, eða 100 milljónir. Ég er ekkert að hugsa um hvað fólk er að segja um þetta. Ég ræð þessu sjálfur," segir Adelson í viðtali við Forbes. Hann hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að hafa styrkt Gingrich um 11 milljónir dollara, en það jafngildir um 0,04 prósent af eignum hans. Adelseon hefur byggt veldi sitt upp á spilavítum, einkum stórum pókersölum í Las Vegas. Hann hefur einnig auðgast mikið á fasteignaviðskiptum í Las Vegas enda verið lengi að í fjárfestingum, eða í liðlega 40 ár. Sjá má útdrátt úr viðtalinu við Adelson hér.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira