Algjör kúvending hefur orðið á farsímanotkun hér á landi að undanförnu þar sem gagnaniðurhal hefur margfaldast. Þrátt fyrir það erum við nokkru á eftir Norðurlöndunum, segir framkvæmdastjóri Nova. Gríðarlega hröð sala á vinsælum snjallsímum á heimsvísu hefur haft afgerandi áhrif á farsímanotkun.
Farsímanotkun hefur tekið miklum breytingum á undanförnum þremur árum, samhliða gríðarlega hraðrar innreiðar svonefndra snjallsíma, sem bjóða upp á mun meiri möguleika á gagnaniðurhali og almennri netnotkun en aðrir farsímar.
Samkvæmt opinberum gögnum Póst- og fjarskiptastofnunar þá hefur gagnaniðurhalið farið úr tæplega átján þúsund og sjö hundruð gígabætum árið 2009 í ríflega 90 þúsund og sjö hundruð árið 2011. Vöxturinn hefur verið mikill hjá öllum símafélögunum en samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa fékk frá þeim í dag er niðurhalið sífellt að aukast.
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir að niðurhal viðskiptavina á Norðurlöndunum í snjallsímum sé umtalsvert meira en hér á landi, eða allt að því þrefalt meira.
Undirliggjandi þáttur í þessari miklu breytingu á farsímanotkun, bæði hér á landi og erlendis, er gríðarlega hröð sala á snjallsímum. Sem dæmi má nefna þá seldi hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple 72 milljónir iPhone síma á 196 dögum, á síðasta ársfjórðungi síðasta árs og fyrsti fjórðungi þessa árs. Það jafngildir um 370 þúsund iPhone snjallsímum á hverjum einasta degi.
Snjallsímar taka yfir - niðurhal eykst
Magnús Halldórsson skrifar
Mest lesið

„Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart
Viðskipti innlent


Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni
Viðskipti innlent

Þórdís til dómsmálaráðuneytisins
Viðskipti innlent

Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“
Viðskipti innlent

Óttast ekki komu Starbucks til Íslands
Viðskipti innlent


Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO
Viðskipti innlent


Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics
Viðskipti innlent