Juventus vann Berlusconi-bikarinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2012 20:56 Arturo Vidal fagnar hér markinu sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Juventus vann 3-2 sigur á AC Milan í kvöld í árlegum leik liðanna um Berlusconi-bikarinn en þetta er minningarleikur Silvio Berlusconi, eiganda AC Milan, um föður sinn Luigi Berlusconi og fer alltaf fram á San Siro í ágústmánuði. Nú var spilað um Berlusconi-bikarinn í 22. sinn en Juve var að vinna hann í tíunda skiptið. Juventus tók ítalska meistaratitilinn af AC Milan á síðustu leiktíð og úrslit kvöldsins benda til þess að AC Milan eigi enn ekkert í Juve-liðið. Brotthvarf Zlatans Ibrahimovic og Thiago Silva í sumar er heldur ekki að gera AC Milan auðveldara fyrir. Brasilíumaðurinn Robinho kom AC Milan reyndar yfir strax á 9. mínútu leiksins en Claudio Marchisio jafnaði aðeins þremur mínútum síðar og Chile-maðurinn Arturo Vidal kom Juve í 2-1 þremur mínútum fyrir hálfleik. Alessandro Matri kom inn á sem varamaður í hálfleik og skoraði þriðja mark Juventus á 64. mínútu með skalla á fjærstöng eftir fyrirgjöf Emanuele Giaccherini. Matri er hugsanlega á leiðinni til AC Milan og ákvað því að fagna ekki markinu sínu. Robinho minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 77. mínútu sem hann fiskaði sjálfur en þetta var annað mark Brasilíumannsins í leiknum. Fleiri urðu mörkin ekki og Juve vann Berlusconi-bikarinn í annað skiptið á þremur árum.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira