Nýr iPad í þessum mánuði 12. október 2012 12:02 Tæknirisinn Apple mun opinbera minni og ódýrari útgáfu af nýjustu iPad-spjaldtölvunni 23. október næstkomandi. mynd/AFP
Tæknirisinn Apple mun opinbera minni og ódýrari útgáfu af nýjustu iPad-spjaldtölvunni 23. október næstkomandi. Það er tæknifréttamiðillinn AllThingsD sem greinir frá þessu. Líklegt er að Apple muni bjóða fréttamönnum á sérstaka samkomu í fundarsal Apple í Kaliforníu. Fyrirtækið hefur svipt hulunni af nokkrum byltingarkenndum viðbótum við vörulínu sína í þessum sal, þar á meðal OS X Lion stýrikerfinu, MacBook Air fartölvunni og iPhone 4S snjallsímanum. Þá hefur tímasetningin einnig vakið athygli en nýjasta spjaldtölva Microsoft, Surface, fer í almenna sölu 26. október. Samkvæmt heimildum AllThingsD verður þessi nýja útgáfa iPad-spjaldtölvunnar mun minni og nettari en forveri sinn. Snertiskjárinn verður 7.85 tommur að stærð en raftækið sjálft verður þynnra en fyrri útgáfur iPad. Þá verður spjaldtölvan búin Lightning tengibrautinni sem Apple frumsýndi á dögunum.
Tækni Mest lesið Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Fréttamaður tekur strætó á Keflavíkurflugvöll Neytendur Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira