Keflvíkingar loksins komnir á blað í Dominosdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2012 21:03 Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Valli
Keflvíkingar unnu sinn fyrsta leik í Dominosdeild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir sóttu tvö stig til Ísafjarðar. Keflavík var búið að tapa fyrstu þremur deildarleikjum sínum en vann nokkuð öruggan tíu stiga útisigur á KFÍ í Jakanum, 79-69. Keflvíkingar töpuðu fyrstu fimm leikjum sínum á tímabilinu í deild (3), Lengjubikar (1) og Meistarakeppni (1) en hafa nú unnið tvo leiki í röð, fyrst stórsigur á 1. deildarliði Hauka í Lengjubikarnum og svo sigurinn á Ísafirði í kvöld. Kevin Giltner skoraði 24 stig fyrir Keflavík og Michael Graion var með 18 stig og 17 fráköst. Momcilo Latinovic skoraði 25 stig fyrir KFÍ og Bradford Harry Spencer var með 15 stig. Keflvíkingar voru í stuði í fyrsta leikhlutanum með Kevin Giltner í fararbroddi. Glitner skoraði 12 stig í leikhlutanum og Keflavík var með átta stiga forystu eftir hann, 24-16. Ísfirðuingar unnu sig inn í leikinn í öðrum leikhluta og Keflvíkingar voru bara fjórum stigum yfir í hálfleik, 43-39. Momcilo Latinovic skoraði tíu stig í leikhlutanum. Darrel Lewis skoraði 9 stig á fyrstu fimm mínútum þriðja leikhluta og hjálpaði Keflavíkurliðinu að komst tíu stigum yfir, 56-46. Keflvíkingar litu ekki til baka eftir að, unnu þriðja leikhlutann 22-10 og voru komnir 16 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 65-49. KFÍ lagaði aðeins stöðuna í lokin en sigur Keflavíkur var aldrei í hættu.KFÍ-Keflavík 69-79 (16-24, 23-19, 10-22, 20-14)KFÍ: Momcilo Latinovic 25, Bradford Harry Spencer 15/5 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 11/5 fráköst, Pance Ilievski 8/4 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 4/7 fráköst, Óskar Kristjánsson 4, Christopher Miller-Williams 2/5 fráköst.Keflavík: Kevin Giltner 24/5 fráköst, Michael Graion 18/17 fráköst, Darrel Keith Lewis 15/5 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 9/4 fráköst, Valur Orri Valsson 4/6 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 4, Ragnar Gerald Albertsson 3, Almar Stefán Guðbrandsson 2/5 fráköst/3 varin skot.
Dominos-deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira