
Einelti, samfélagslegur fjandi!
Þeir eru ófáir sem eiga einhverja sögu úr grunnskóla um einelti og líta á sína eigin grunnskólagöngu sem helvíti á jörðu.
Ég var þolandi eineltis og örugglega gerandi líka, ef svo var vona ég að þeir geti fyrirgefið mér. Ég hef fyrirgefið þeim sem lögðu mig í einelti.
Fyrir rétt rúmum tuttugu árum var ég forfallakennari í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Á einni viku sá ég sjö einstaklinga lagða í einelti. Það kom mér á óvart hve mikið eineltið var og nefndi það við einn gamlan og reyndan kennara. Ein athugasemd situr í mér eftir það samtal, þegar við ræddum hvaða einstaklingar væru þolendur, hann sagði „Nei, þessi er ekki lagður í einelti, hann leitar í neikvæða athygli!"
Þetta var 1991 og við ekki komin lengra.
Á heimasíðu umboðsmanns barna, www.barn.is, er að finna skýrslu frá ráðstefnunni „Börn vilja ræða um einelti við fullorðna" sem haldin var 1998. Í formála segir: „Þar settust 80 börn og 50 fullorðnir á rökstóla og ræddu þetta alvarlega vandamál í blönduðum umræðuhópum kynslóðanna."
Þetta var 1998, hefur eitthvað breyst?
Nú, fjórtán árum síðar er enn verið að ræða þennan fjanda sem einelti er. Mikið er rætt um hvort hinar eða þessar eineltisáætlanir virki. Við erum búin að ræða svo mikið að „Ísland án eiturlyfja árið 2000" kemur upp í hugann!
Það sem er merkilegt við þessa umfjöllun um einelti er að hún einskorðast við börn og skólasamfélagið og að það sé skólanna að gera eitthvað í þessu vandamáli sem einelti er. Já, svo sannarlega á skólinn að taka þátt í að koma í veg fyrir einelti en það er ekki skólans að uppræta einelti. Það er samvinnuverkefni alls samfélagsins og það byrjar á heimilinu.
„Það læra börnin sem fyrir þeim er haft" kemur upp í hugann. Á heimilum, í samskiptamiðlum og í fjölmiðlum hegða fyrirmyndirnar sér þannig að börn geta svo hæglega túlkað þeirra framferði sem samþykki fyrir t.d. einelti. Margir kannast við að bölva mönnum og málefnum fyrir framan sjónvarpið, heyra börnin það?
Birtingarmynd eineltis er alls staðar og eru stjórnmál gott dæmi um það. Heiftin ræður ríkjum og í skjóli fjarlægðar í gegnum net- og fjölmiðla stunda stjórnmálamenn það að reyna að koma höggi á andstæðinginn undir því yfirskyni að þeir séu að láta frjálsar skoðanir í ljós og oftar en ekki er ýmislegt látið vaða sem særir. Það særir ekki bara þann sem fyrir verður heldur vini, fjölskyldu og börn. Stundum ganga stjórnmálamenn það langt að embættismenn verða ítrekað fyrir aðkasti án þess að þeir síðarnefndu geti hönd yfir höfuð sér borið.
Sér barnið þitt hvað þú skrifar um náungann á samskiptamiðlum eins og fésbók? Getum við leyft okkur að skrifa hvað sem er, jafnvel í reiði og réttlætt það? Eru fúkyrði skoðun? Er dónaskapur túlkun? Hugsum áður en við tjáum okkur.
Árið er 2012 og einelti er samfélagslegur fjandi sem við þurfum að útrýma!
Skoðun

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar

Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi
Ingvar Stefánsson skrifar

Raddir fanga
Helgi Gunnlaugsson skrifar

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Rjúfum þögnina og tölum um dauðann
Ingrid Kuhlman skrifar

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar

Aldrei aftur
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Tala ekki um lokamarkmiðið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf
Einar G. Harðarson skrifar

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar