Skoðun

Komandi kosningar – JÁ eða NEI?

Sighvatur Björgvinsson skrifar
Bandaríska stjórnarskráin er orðin tvö hundruð tuttugu og fjögurra ára gömul og er að megininntaki óbreytt þó samþykktar hafi verið breytingar og viðbætur tuttugu og sjö sinnum. Á líftíma bandarísku stjórnarskrárinnar hafa margvíslegar hremmingar riðið yfir bandarísku þjóðina – miklar og stórar kreppur – en stjórnarskráin er ekki talin hafa valdið þeim.

Íslenska stjórnarskráin er 138 ára gömul og er að megininntaki óbreytt þó samþykktar hafi verið viðbætur og breytingar alls sjö sinnum. Á líftíma íslensku stjórnarskrárinnar hafa margvíslegar hremmingar riðið yfir íslensku þjóðina – miklar og stórar kreppur – en stjórnarskráin er ekki talin hafa valdið þeim.

Samt sem áður getur verið skynsamlegt að endurskoða íslensku stjórnarskrána frá grunni til breytinga – þó það geti vart talist vera lífsnauðsynlegt. Þjóðfundur og Stjórnlagaráð hafa unnið vel og komið fram með margar, góðar hugmyndir – en aðrar miður góðar. Nú á að fara að greiða atkvæði um tiltekna efnisþætti. Og hvað á fólk að gera?

Þorvaldur Gylfason og fleiri Stjórnlagaráðsmenn segja, að þeir, sem segja JÁ við spurningunni um hvort leggja eigi tillögur Stjórnlagaráðs til grundvallar við meðferð Alþingis á málinu séu að lýsa fortakslausum stuðningi sínum við öll atriðin í tillögum ráðsins og þeim megi alþingismenn því á engan hátt breyta. Þá get ég ekki sagt JÁ, því þó ég sé sammála sumum tillögunum er ég ósammála öðrum.

Reimar Pétursson og aðrir skoðanabræður hans segja að ef sagt sé NEI við sömu spurningu sé það höfnun á tillögum Stjórnlagaráðs og þá eigi að leggja tillögurnar til hliðar og ekki taka mark á þeim meir. Ég get þá ekki heldur sagt NEI, því þó ég sé ósammála sumum tillögunum er ég sammála öðrum og vil ekki að mikilli og góðri vinnu Þjóðfundarins og Stjórnlagaráðs verði hent út í hafsauga.

Ég get því hvorki sagt JÁ né NEI eins og málið er kynnt fyrir þjóðinni og svo mun fleirum farið. Nú er það svo, að samkvæmt gildandi stjórnarskrá er stjórnarskrárgjafinn Alþingi. Þeim fyrirmælum verður að fylgja. Þarna verður Alþingi sem sé að kveða upp sinn dóm. Hver verða viðbrögð Alþingis við niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar? Telur Alþingi að ef meirihlutinn segi JÁ við umræddri spurningu sé Alþingi þar með óheimilt að hnika til eða breyta tillögum Stjórnlagaráðs? Telur Alþingi, að ef meirihlutinn segir NEI eigi Alþingi ekkert tillit að taka til tillagna Stjórnlagaráðsins og ekkert mið hafa af tillögum þess við framhaldsmeðferð málsins?

Ég sé ekki hvernig hægt er að ganga til atkvæða á forsendum þeirra Þorvaldar og Reimars. Í lýðræðislandi má ekki og á ekki að efna til atkvæðagreiðslu um mikilvæg mál með jafn mikilli óvissu um hvað afstaða hvers og eins raunverulega þýðir. Æðsti lýðræðisvettvangur þjóðarinnar er Alþingi. Þaðan verður að koma leiðsögn um hvernig túlka ber afstöðu kjósenda í komandi kosningum og sú leiðsögn verður að koma áður en gengið er til kosninganna. Forseti Alþingis er rödd þjóðþingsins. Hvað segir sú rödd?




Skoðun

Skoðun

Daníel Guðmundsson skrifar

Sjá meira


×