

Sameining Garðabæjar og Álftaness
Ef til sameiningar sveitarfélaganna kemur mun Garðabær yfirtaka sem nemur um 1,8 milljörðum króna umfram þær skuldir sem eru á íbúa í Garðabæ. Þetta þýðir að skuldir í sameinuðu sveitarfélagi verða um 130 þúsund krónum hærri á íbúa en nú er í Garðabæ, fara úr um 520 þúsund krónum á íbúa í um 650 þúsund krónur á íbúa, hækkun sem nemur um 25%. Ákjósanlegt hefði verið að leggja upp með jafnræði í skuldastöðu sveitarfélaganna en eftir samningaviðræður við lánardrottna Álftaness og ríkið er niðurstaðan þessi. Í skýrslu R3 kemur fram að hjá sveitarfélaginu Álftanesi séu málaferli í gangi vegna tveggja ágreiningsmála en engin í Garðabæ. Einnig kemur fram að ráðast þurfi í framkvæmdir í fráveitumálum á Álftanesi sem áætlað er að nemi allt að 270 milljónum króna.
Gert er ráð fyrir sömu skattlagningu og þjónustu í sameinuðu sveitarfélagi og nú er í Garðabæ. Aftast í skýrslu R3 eru settar fram áætlaðar lykiltölur sem taka mið af sameiningu sveitarfélaganna og þær bornar saman við áætlaðar lykiltölur sveitarfélaganna án sameiningar. Áætlað er að hagræðing náist í rekstri sameinaðs sveitarfélags um 120 milljónir króna á ári en á móti komi kostnaðaraukning upp á 150 milljónir króna vegna jöfnunar á skattheimtu og endurgreiðslum sem nú eru í Garðabæ og Álftnesingar muni njóta í sameinuðu sveitarfélagi. Áætluð hagræðing gerir ráð fyrir að ráðist verði í verulega fækkun nefnda hjá sameinuðu sveitarfélagi. Á vefnum www.okkarval.is kemur fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar um fækkun nefnda þannig að slá þarf varnagla við þessari tölu. Gert er ráð fyrir að kostnaðaraukinn við bætta þjónustu/auknar niðurgreiðslur til Álftnesinga muni nema um 23 milljónum króna árlega og samræming á útsvarsprósentu minnkar tekjur frá íbúum Álftaness um 124 milljónir króna árlega. Útsvarstekjur á íbúa á árinu 2011 voru 392 þúsund krónur í Garðabæ en 375 þúsund krónur á Álftanesi eða um 4% lægri en í Garðabæ. Ef útsvarsprósenta Álftnesinga á árinu 2011 hefði verið sú sama og í Garðabæ, eða 13,66% í stað 15,20%, þá hefðu útsvarstekjurnar verið 15% lægri á íbúa á Álftanesi en í Garðabæ.
Samkvæmt 11. gr. nýrra sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, skal fjöldi aðalmanna í sveitarstjórn vera 11-15 talsins í sveitarfélögum með 10.000-49.999 íbúa. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í nýjum sveitarstjórnarlögum þarf þó ekki að koma til fjölgunar á fulltrúum í sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags fyrr en við sveitarstjórnarkosningar 2018. Tekið er fram í skýrslu R3 að við sameiningu sveitarfélaganna sé hægt að ákveða að fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn við kosningar árið 2014 verði óbreyttur, eða sjö. Í næstu kosningum eða árið 2018 þarf þó fjöldi fulltrúa að vera kominn í 11-15 eins og að framan segir, algjörlega óháð því hvort til sameiningar komi eða ekki fyrir Garðabæ. Þess er getið í skýrslunni að rétt þyki ef til sameiningar komi að hafa sama fulltrúafjölda í nefndum líkt og nú er hjá Garðabæ þ.e. fimm fulltrúa, þó þannig að Fræðslunefnd verði sameinuð nefnd grunnskóla-, leikskóla- og tónlistarskólamála sem í væru sjö fulltrúar til að tryggja sem mesta breidd sjónarmiða. Meðal kostnaðarhagræðingar sem lögð er til í skýrslunni er gert ráð fyrir verulegri fækkun nefnda í sameinuðu sveitarfélagi eða í sex. FÓLKIÐ- í bænum telur mikilvægt að ef til sameiningar kemur að ráðist verði í rekstrarhagræðingu að lágmarki eins og lagt er upp með í skýrslu R3 en samhliða verði þó gætt lýðræðis í stjórnskipuninni þannig að allir flokkar sem eiga bæjarfulltrúa, eigi fulltrúa í nefndum og ráðum bæjarins.
FÓLKIÐ- í bænum hefur í sameiningarviðræðunum verið jákvætt í garð sameiningar en á sama tíma höfum við verið varkár og kallað eftir ítarlegum upplýsingum til að fá sem heildstæðasta mynd af stöðunni. Við hvetjum ykkur bæjarbúar til að huga vel að kostum og göllum sameiningar og mæta á kjörstað til að tjá hug ykkar til sameiningar.
Skoðun

Helför Palestínumanna í beinni útsendingu – viljum við vera samsek?
Ólafur Ingólfsson skrifar

Byggð í Norðvesturkjördæmi: lífæð framtíðar Íslands
Ragnar Rögnvaldsson skrifar

Hverju hef ég stjórn á?
Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar

Metnaður eða metnaðarleysi?
Sumarrós Sigurðardóttir skrifar

„Þetta er allt í vinnslu“
María Pétursdóttir skrifar

Arðsemi og tilgangur - eitt útilokar ekki annað
Elva Rakel Jónsdóttir,Erla Ósk Ásgeirsdottir skrifar

Iðnaðarstefna – stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið
Sigurður Hannesson skrifar

Hættum að bregðast íslensku hryssunni
Rósa Líf Darradóttir skrifar

Börnin bíða meðan lausnin stendur auð
Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Áður en það verður of seint
María Rut Kristinsdóttir skrifar

Lygin lekur niður á hökuna
Jón Daníelsson skrifar

Líflínan
Ingibjörg Isaksen skrifar

Ríkisfyrirtæki sem virðir ekki æðsta valdið
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Neikvæðni í garð sjávarútvegs á Íslandi – orsakir og afleiðingar
Kristín Þórarinsdóttir skrifar

Við erum hafið
Guillaume Bazard skrifar

Deja Vu
Sverrir Agnarsson skrifar

Mun mannkynið lifa af gervigreindina?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Ríkisstofnun rassskellt
Björn Ólafsson skrifar

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir – margþættur ávinningur
Ludvig Guðmundsson,Guðrún E. Gunnarsdóttir skrifar

Orkuöflun á eyjaklösum - Vestmannaeyjar og Orkneyjar
Gísli Stefánsson skrifar

Hugrekki getur af sér hugrekki
Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar

D-vítamín mín besta forvörn
Auður Elisabet Jóhannsdóttir skrifar

Húmanisminn í kærleikanum og kærleikurinn í húmanismanum
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar

Helför gyðinga gegn íbúum Palestínu
Birgir Dýrfjörð skrifar

Leiðréttingin leiðrétt
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson skrifar

Hvað skiptir okkur mestu máli?
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar

Mikilvægt skref til sáttar
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Staðið með þjóðinni
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Við vitum alveg upphafið
Guðný Níelsen skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 3/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar