Enn munar mjóu á frambjóðendunum 24. október 2012 01:00 Romney og Obama Síðustu kappræðurnar skipta vart sköpum þótt staða Obamas hafi skánað.Fréttablaðið/AP
Þeir Barack Obama og Mitt Romney þurfa að leggja hart að sér til að ná eyrum óákveðinna kjósenda á miðjunni þær tvær vikur sem eftir eru fram að forsetakosningum í Bandaríkjunum. Obama þótti standa sig mun betur en Romney í síðustu sjónvarpskappræðum þeirra, sem haldnar voru á mánudagskvöld. Áherslan var á utanríkismál, þar sem Obama er á heimavelli en Romney reynslulítill. Greinilegt var á málflutningi Romneys að hann reyndi að færa sig nær miðjunni í þessum málaflokki en hann hefur gert til þessa. Obama notaði hins vegar hvert tækifæri til að koma að þeim áformum sem hann hefur um uppbyggingu innanlands á næstu árum, þegar herinn verður farinn frá Afganistan. Stærstu mistök Romneys voru þegar hann tók að gagnrýna Obama fyrir að bandarískum herskipum hefði fækkað mjög síðan 1916. Obama svaraði því til að í hernum væru líka færri hestar og byssustingir en þá, enda ekki eins mikil þörf fyrir þá lengur: „Við erum með þessa hluti sem kallaðir eru flugmóðurskip, sem flugvélar lenda á. Við erum líka með þessi skip sem sigla neðansjávar, kölluð kafbátar. Þetta snýst ekki um leik sem heitir Orrustuskip, þar sem við teljum skipin."- gb
Fréttir Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Sjá meira