Stórglæsileg met hjá Júlían Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. febrúar 2013 10:00 Júlían J. K. Jóhannsson.
Júlían J. K. Jóhannsson náði ekki að vinna Norðurlandameistaratitilinn í kraftlyftingum í sínum flokki þrátt fyrir að hafa sett tvö Íslandsmet, þar af stórglæsilegt met í réttstöðulyftu. Júlían gerði ógilt í öllum tilraunum sínum í hnébeygju sem þýddi að hann fékk ekki gilt heildarskor. Hann reyndi fyrst við 327,5 kg og svo tvívegis við 332,5 kg. Júlían keppir í yfirþungavigt í flokki 23 ára og yngri og er Íslandsmethafi í öllum greinum. Met hans í hnébeygju er 330 kg. Hann bætti Íslandsmetin sín í bæði í bekkpressu og réttstöðulyftu. Hann lyfti 247,5 kg í bekkpressu og bætti metið um tvö og hálft kíló. Júlían gerði sér svo lítið fyrir og stórbætti metið sitt í réttstöðulyftu. Hann lyfti 350 kg en gamla metið var 327,5 kg. Það setti hann á Evrópumeistaramóti unglinga í Danmörku í fyrra þegar hann vann gull í sínum flokki. Júlían varð einnig heimsmeistari unglinga í réttstöðulyftu síðar á árinu er hann lyfti 325 kg. Keppt var í fjölmörgum flokkum á mótinu sem fór allt fram í gær og má sjá úrslitin hér.
Íþróttir Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Fleiri fréttir Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Cunha eða Mbeumo? Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Mickelson blandast aftur inn í innherjasvikamál David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Bikarmeistararnir fara norður Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Sjá meira