Mata: Villas-Boas getur tekið við starfi Mourinho Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2013 17:45 Juan Mata og Andre Villas-Boas. Mynd/Nordic Photos/Getty
Juan Mata, leikmaður Chelsea og fyrrum lærisveinn Andre Villas-Boas á Brúnni, mælir með því að Real Madrid fái Villas-Boas til að taka við þjálfarastarfi félagsins af Jose Mourinho þegar Portúgalinn hættir með spænska liðið í vor. Spænskir fjölmiðlar eru flestir öryggir á því að Mourinho hætti með Real Madrid eftir þetta tímabil. „Ég tel að Villas Boas sé frábær þjálfari, nútímalegur og ungur en jafnframt með þá reynslu og þekkingu sem þarf til. Þetta segi ég þótt að það hafi ekki gengið vel hjá honum hjá Chelsea," sagði Juan Mata. „Við erum í góðu sambandi og ég verð honum alltaf þakklátur. Hann er tilbúinn í að þjálfa hvaða lið sem er," sagði Mata en Villas-Boas fékk hann til Chelsea á sínum tíma. Andre Villas-Boas er að gera flotta hluti með Tottenham-liðið sem á góðar líkur á því að tryggja sér Meistaradeildarsæti í vor og er einnig komið áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar. Juan Mata vill samt ekkert tala um það hvort Jose Mourinho sé að koma aftur á Stamford Bridge í sumar og segist bara ætla að einbeita sér að spila fyrir Rafael Benitez.Mynd/AFP
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira