Á tónleikunum flutti Frank þrjú glæný lög og voru áhorfendur hrifnir. Aðdáendur Ocean bíða nú eftir næstu plötu hans með mikilli eftirvæntingu en hans fyrsta, Channel Orange, sló rækilega í gegn þegar hún kom út í fyrra.
Frank er nú á tónleikaferðalagi um heiminn að fylgja eftir vinsældum fyrstu plötunnar en þessi heimstúr endar einmitt á Íslandi þarnæsta þriðjudag. Það má því leiða miklum líkum að því að hann muni flytja þessi nýju lög sem hann flutti fyrir tónleikagesti í þýskalandi á tónleikunum hér í Laugardalshöllinni 16. júlí.
Á tónlistarfréttasíðunni MTV.com er haft eftir tónleikagestum að umfjöllunarefni nýju laganna sé misjafnt en eitt laganna fjallar um það að Frank sé ekki tilbúinn að festa ráð sitt, hann vilji frekar sitja í tugthúsi. Annað lag fjallar um bíla og hið sólríka Kaliforníufylki og þriðja lagið fjallar um ástarsorg.
Hér að neðan er hægt að hlusta á lögin: