Karlalið KR í handbolta vann nauman sigur á ÍH 24-23 í viðureign liðanna í 1. deildinni í gærkvöldi.
Vesturbæingar leiddu 14-11 í hálfleik og hélst spennan til loks. ÍH-ingar gerðu atlögu að stigi á útivelli en þurftu að sætta sig við eins marks tap.
Haraldur Þorvarðarson skoraði 9 mörk fyrir KR-inga sem nú eru komnir í 5. sæti deildarinnar. Bogi Eggertsson skoraði 6 mörk fyrir ÍH sem situr í 6. sæti.
KR-ingar mörðu sigur á ÍH
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
