Meistari með þremur Suðurnesjaliðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2013 06:00 Sverrir Þór var sigursæll sem leikmaður og nú líka sem þjálfari.Fréttablaðið/anton
Grindavík tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Dominos-deild karla á fimmtudagskvöldið þegar liðið vann fimmtán stiga sigur á Fjölni, 97-82. Grindavík hefur unnið 17 af 21 leik á fyrsta tímabili liðsins undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar og er með fjögurra stiga forystu fyrir lokaumferðina sem fer fram á sunnudagskvöldið. Grindvíkingar hafa þar með unnið deildina tvö ár í röð en þeir fóru alla leið og urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í sextán ár í fyrra. Sverrir Þór tók við Íslandsmeistaraliðinu af Helga Jónasi Guðfinnssyni og fór einnig með liðið í bikarúrslitin ásamt því að stýra liðinu til deildarmeistaratitilsins. Sverrir Þór hefur þar með unnið deildarmeistaratitilinn með öllum þremur Suðurnesjaliðunum, Keflavík, Njarðvík og nú Grindavík. Þetta er reyndar annar deildarmeistaratitill hans sem þjálfari en Keflavíkurkonur unnu deildina undir hans stjórn veturinn 2004-2005. Sverrir Þór vann síðan alls fjóra deildarmeistaratitla sem leikmaður, þrjá með Keflavík (2002, 2005 og 2006) og einn með Njarðvík (1996). Hann varð því deildarmeistari í sjötta sinn í Grindavík í fyrrakvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjá meira