
"Brennivínið gefur anda og snilli“
Ætli það sé ekki eitthvað orðum aukið. En af einu getum við sem samfélag samt verið nokkuð stolt: okkur hefur auðnast að meðhöndla alkóhólisma hjá mjög mörgu fólki á umliðnum áratugum, hjálpað fólki að rata út úr ánauð fíknar og í átt til allsgáðrar tilveru.
Gamall kunningi úr Vogunum vildi að ég minnti hér í þessum dálki á það góða starf sem fram fer á Vogi. Það er auðsótt mál. Og þótt ég sé ekki góður í því að ráðleggja fólki um það hvernig það á að verja fé sínu er rétt að hvetja alla aflögufæra einstaklinga sem hugsa hlýlega til þessarar starfsemi til þess að styrkja þá uppbyggingu sem þar er fyrirhuguð í öllum niðurskurðinum og harmkvælunum.
Vel má vera að deila megi um eitt og annað í þeirri miklu starfsemi sem á Vogi hefur farið fram en hitt fer þó ekki á milli mála að mörg mannslíf hafa verið endurheimt þar, í öllum skilningi, bæði þeirra sem við sjúkdóminn hafa glímt í eigin skinni – og þeir fyrir vikið eignast margar stundir sem ella hefðu glatast – og líka hinna sem mega gjalda fyrir sjúkdóminn sem aðstandendur, með margvíslegum afleiðingum, leyndum og ljósum.
Manni verður hugsað til allra hinna sem fórust en hefðu getað bjargast. Manni verður hugsað til allra þeirra verðmæta sem farið hafa í súginn í vímunni; allrar þeirrar orku sem leyst var úr læðingi í vímunni til einskis og varð eyðingarafl en ekki sköpunarafl.
„Ég drekk og finn mitt æskuvor / en eldist við hvert drykkjuspor“, orti Páll Ólafsson, þetta næma skáld sem rómaði brennivínið af meiri þrótti og snilli en aðrir en vissi samt þetta: sá sem drekkur eldist við hvert drykkjuspor; fólk lifir sterkt eitt augnablik í vímunni en þar er líka hver dagur sem nokkur ár.
Fráls vilji eða DNA?
Þeir tala um alkóhólistagen. Og var víst eitt af því sem átti að gera okkur rík í síðustu bólu – að hafa þessi óskaplegu gen. Ég veit það ekki. Ég er ekki nógu vel að mér í líffræði til að vita hvort til sé alkóhólistagen, þjófagen, lygagen, utanviðsig-gen eða kærleiksgen. Held samt ekki. Getur ekki verið að við höfum gert fullmikið úr því að allt okkar framferði stafi af virkni gena? Er þetta ekki hálf vonarsnauð viska og vélræn? Er þessi vísindatrú studd eitthvað meiri þekkingu – í raun og veru – en önnur trúarbrögð? Ég trúi því sjálfur að ég hafi frjálsan vilja og geti á hverjum degi notað þennan frjálsa vilja til að ákveða smátt og stórt í lífi mínu: hvort ég gef stefnuljós, hvort ég fæ mér snúð, hvort ég læri ítölsku; hvort ég sýni mínum nánustu ástúð, hvort ég farga mér, hvort ég lifi. Ég trúi því að það sé undir mér komið hvort ég geng í ljósi eða myrkri og held að DNA komi þar hvergi nærri, þótt þar leynist vissulega kímið að ýmsum eiginleikum mínum; til dæmis að vera örvhentur. Það er hins vegar undir mér og mínu vali komið hvort sú vinstri hönd vinnur þarft eða er til óþurftar.
Hvað sem veldur þá hefur þessi sjúkdómur plagað íslenskt samfélag um aldir, svo að jafnvel má tala um þjóðarböl á köflum. Kannski er þetta sjúkdómur hins ábyrgðarlausa og vansæla nýlendubúa sem finnst hann ekki eiga neitt val, finnst hann vera ófrjáls. Nógu duglegir voru dönsku kaupmennirnir að minnsta kosti að hella á staupin hjá köllunum þegar þeir voru í kaupstaðaferðum. Þannig var það óaðskiljanlegur hluti hverrar velheppnaðrar kaupstaðaferðar hjá mörgum að drekka frá sér ráð og rænu og láta hestinn um að koma sér heim.
Það viðhorf hefur verið landlægt hér að fullkomlega eðlilegt sé að veruleikinn sé óbærilegur, og eina ánægja sem hægt sé að hafa af lífinu sé að flýja inn í óraunveruleika vímunnar.
Lífið og tilveran
Djúpt í íslenskri heimspeki er sú hugmynd að lífið og tilveran sé sitt af hvoru tagi; samanber orðtakið „að tala um lífið og tilveruna“. Og að líf sitt geti maður fundið á stopulum stundum, í vímunni, en tilveran sé eins og hver annar fangelsisdómur, hver önnur síbiríuvist, þrældómur og tóm leiðindi. Tilveruna sé svo hægt að flýja af og til í kaupstaðaferðum og við önnur slík tækifæri, með því að drekka þangað til maður er búinn að gleyma stund og stað.
Við megum ekki ganga of langt í því að telja fyllirí séríslenskt fyrirbæri – slíkar samkomur tíðkast víða um norðurálfu og eru sjálfsagt rótgróinn partur af okkar norðurevrópsku menningu. En hér á landi hefur löngum þrifist sérlega hvimleið brennivínsdýrkun og drykkjumenning. Og hér blasir við það verkefni að hjálpa fólki sem ánetjast hefur þörfinni fyrir vímu; að slíta tengsl efna og vellíðunar; að knýja fólk til að horfast í augu við dagleg verkefni daglegs lífs, og skynja tilveruna óbrjálaða af aðskotaefnum sem rugla skilningarvitin. Finna lífið í tilverunni.
Þar hefur Vogur miklu hlutverki að gegna.
Skoðun

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar

Málfrelsi og mörk þess á vettvangi lýðræðisins
Helga Vala Helgadóttir skrifar

Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi
Ingólfur Ásgeirsson skrifar

Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ?
Ólafur Ívar Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæðið: Neyðarhemill en ekki léttvægt leikfang popúlista
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Stjórnarandstaðan er vannýtt auðlind
Jón Daníelsson skrifar

Ef Veðurstofan spáði vitlausu veðri í 40 ár, væri það bara í lagi?
Björn Ólafsson skrifar

Hægri sósíalismi
Jón Ingi Hákonarson skrifar

5 ára vegferð að skóla framtíðarinnar – eða ekki!
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu
Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar

Það sem ekki má segja um það sem enginn vill sjá
Viðar Hreinsson skrifar

Krónan, Nettó, Hagkaup, Bónus - það er kominn tími á formlega sniðgöngu
Helen Ólafsdóttir skrifar

Löggæslumál og aðstöðuleysi í Búðardal – ákall um viðbragð og aðgerðir
Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar

Listin að verða fullkomlega ósammála sjálfri sér á mettíma
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þingmenn auðvaldsins
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Arðgreiðslur í sjávarútvegi: Staðreyndir gegn fullyrðingum
Elliði Vignisson skrifar

Verðugur bandamaður?
Steinar Harðarson skrifar

Við þurfum nýja sýn á stjórnmál okkar - Mamdani-sýn
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Sósíalistaflokkurinn heimilislaus - hvað næst?
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Rán um hábjartan dag
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Af hverju er verðbólga ennþá svona há?
Ólafur Margeirsson skrifar

Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu
Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

Uppbygging hjúkrunarheimila
Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Jafnrétti grundvallarforsenda friðar og öryggis í heiminum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Með skynsemina að vopni
Anton Guðmundsson skrifar

Af hverju er ekki 100 klst. málþóf á Alþingi um alvarlega stöðu barna?
Grímur Atlason skrifar

Knattspyrna kvenna í hálfa öld – þakkir til Eggerts Magnússonar
Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar

80.000 manna klóakrennsli í Dýrafjörð í boði Arctic Fish
Jón Kaldal skrifar