Patti tryggði Íslandi leikinn um fimmta sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2014 18:53 Patrekur Jóhannesson, þjálfari austurríska landsliðsins, fagnar í kvöld. Vísir/Daníel
Austurríki vann frábæran sigur á Ungverjalandi, 25-24, á EM í handbolta í kvöld og því er ljóst að leikur Danmerkur og Íslands er þýðingarlaus. Danmörk var þegar öruggt með efsta sæti milliriðils 1 og fyrr í dag tryggðu Spánverjar sér annað sætið með sigri á Makedóníu. Ungverjar áttu einir möguleika á að ná Íslandi að stigum í þriðja sætinu en þeir fóru illa að ráði sínu gegn lærisveinum Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu í kvöld. Ungverjaland höfðu yfirhöndina framan af og fjögurra marka forystu í hálfleik, 13-9. Austurríkismenn sýndu þó mikla baráttu í síðari hálfleik og sneru leiknum sér í vil. Lokamínúturnar voru spennandi og fékk Ungverjaland tækifæri til að jafna metin þegar ein mínúta var eftir. Það gekk ekki eftir og skoraði hvort lið sitt markið á lokasekúndunum. Þetta var góður endir á mótinu fyrir Austurríki en liðið endaði engu að síður í neðsta sæti í milliriðli 1 með tvö stig. Makedónía er einnig með tvö stig en betri árangur í innbyrðisviðureign liðanna. Ungverjaland er í fjórða sætinu með þrjú stig og Ísland með fimm stig. Danmörk og Spánn eru bæði með átta stig.
EM 2014 karla Mest lesið Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Fótbolti Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Körfubolti Þróttur skoraði sex og flaug áfram Íslenski boltinn Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Fótbolti Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Fótbolti Fleiri fréttir HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Sjá meira