Óveðrið nær hámarki síðdegis Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. febrúar 2014 16:23 Varað er við óveðri víða og eru einhverjir vegir bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi orðnir ófærir. vísir/vilhelm
Óveðrið í Mýrdal og undir Eyjafjöllum nær hámarki nú síðdegis með vindhviðum allt að 40-45 m/s. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Stormur og hríðaveður er á Hellisheiði og í Þrengslum og vindhviður allt að 40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Lagast mikið á milli klukkan 20 og 22. Um mest allt norðan- og austanvert landið fer veður versnandi fram á kvöldið. Stormur verður og stórhríð á flestum fjallvegum fram á nóttina, en á láglendi hlánar með slyddu og rigningu, en þó ekki á Vestfjörðum fyrr en seint í kvöld.Færð og aðstæður Varað er við óveðri víða og eru einhverjir vegir bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi orðnir ófærir. Einnig er varað við sandbyl á Skeiðarársandi og Mýrdalssandi. Það er hálka og stórhríð á Hellisheiði en hálkublettir og skafrenningur í Þrengslum og undir Ingólfsfjalli. Hálkublettir eru einnig á Mosfellsheiði og hálka er sumsstaðar í uppsveitum á Suðurlandi. Hálka er á Bláfjallavegi og í Kjósarskarði en flughált í Efri Grafningi. Óveður er á Reynisfjalli og undir Eyjafjöllum. Það er hálka eða hálkublettir á köflum á Vesturlandi, einkum á útvegum. Varað er við óveðri undir Hafnarfjalli, við Hafursfell, Vatnaleið og á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víða hvasst og skafrenningur eða ofankoma. Ófært og stórhríð er á Klettshálsi, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði og þar er ekki útlit fyrir að opnist í dag. Þæfingur er á kafla í Djúpinu. Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Norðurlandi og hríðarveður. Ófært og stórhríð er á Þverárfjalli og ófært og óveður er á Öxnadalsheiði. Ófært er bæði á Hólasandi og Dettifossvegi. Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Austurlandi og sumsstaðar skafrenningur eða él. Vegur er auður frá Djúpavogi suður um en óveður í Hvalnesi og í Öræfum. Sandbylur er á Skeiðarársandi og Mýrdalssandi.
Veður Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Sjá meira