Innlent

Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hakakrossinn var rispaður á bíl Kristjáns.
Hakakrossinn var rispaður á bíl Kristjáns.

Bílar hafa verið rispaðir í að minnsta kosti þremur hverfum Reykjavíkur undanfarna daga. Íbúi í Vesturbæ segir ljóst að um mikið tjón sé að ræða fyrir íbúa en sjálfur greiddi hann 150 þúsund krónur fyrir viðgerð vegna hakakross sem rispaður var á bíl hans. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa borist sex tilkynningar um skemmdarverk á bílum í þessum mánuði. Málið er til rannsóknar. Mikil umræða fer nú fram á samfélagsmiðlum þar sem íbúar í Vesturbæ, Hlíðunum og Vogahverfi hafa birt myndir af bílum sem hafa verið rispaðir.

„Ég hef ekkert heyrt í lögreglunni enn, þetta er væntanlega allt í vinnslu,“ segir Kristján Ingi Einarsson íbúi við Flyðrugranda í Vesturbænum í samtali við Vísi. Hann birti mynd af bíl sínum á miðvikudag í íbúahópi en hakakross hafði verið rispaður á bílinn. Kristján segist hafa fengið mikil viðbrögð við færslunni en hann fór með bílinn í viðgerð hið fyrsta enda ekki hægt að keyra um með hakakross á bílnum. Meðal þess sem íbúar hafa rætt sín á milli er hvort að um svokallað Tik-Tok trend sé að ræða á samfélagsmiðlum.

Hvað kostar að gera við svona?

„Tja, ég þarf að borga allavega 150 þúsund krónur í sjálfsábyrgð. Þannig þetta eru töluverðir fjármunir og ég tala nú ekki um ef það eru margir að lenda í þessu. Það mikilvægt að það sé rætt um þetta,“ segir Kristján. 

Þá birti Brynja Þóra Guðnadóttir íbúi í Stórholti myndband af óprúttnum aðila í hettupeysu sem rispaði bíl hennar með lykli í síðustu viku. Hún segir bíl sinn hafa verið kaskó tryggðan og hún því líkt og Kristján borgað 150 þúsund krónur í sjálfsábyrgð.

„Þetta gerist örfáum dögum fyrr þarna í minni götu, aðfaranótt föstudags í síðustu viku um hálf tvö leytið. Það var annar bíll í götunni sem var líka rispaður og maður myndi halda að það væri þá sami aðili að verki, þó maður viti það ekki. Svo nokkrum dögum síðar gerist þetta í vesturbænum.“

Lögregla hefur biðlað til íbúa sem kunna að hafa upplýsingum um málið að hafa samband við lögreglu. Þeim er bent á að hringja í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á gudmundur.petur@lrh.is. Lögreglan óskaði sér í lagi eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum stöðum.

Klippa: Bíll rispaður í Stórholti í Reykjavík



Fleiri fréttir

Sjá meira


×