Chadli gaf Tottenham von í Portúgal | Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. mars 2014 16:19
Tottenham féll í kvöld úr leik í Evrópudeild UEFA eftir að hafa gert 2-2 jafntefli við Benfica í Portúgal. Benfica vann fyrri leikinn í Lundúnum, 3-1, og vonir þeirra ensku ekki miklar fyrir kvöldið. Ekki skánaði það svo þegar Ezequel Garay kom Benfica yfir með marki úr skalla á 34. mínútu. En Nacir Chadli skoraði tvívegis með skömmu millibili þegar rúmar tíu mínútur voru eftir og þá þurfti Tottenham aðeins eitt mark í viðbót til að knýja fram framlengingu.Gylfi Þór Sigurðsson, sem spilaði allan leikinn í kvöld, komst nálægt því að skora markið mikilvæga þegar skalli hans var varinn. En Benfica gerði svo út um rimmuna með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma og niðurstaðan því 5-3 samanlagður sigur heimamanna. Fyrr í kvöld komst Íslendingaliðið AZ Alkmaar áfram eftir 1-0 samanlagðan sigur á Anzhi frá Rússlandi. Þá er Juventus komið áfram eftir 1-0 sigur liðsins á Fiorentina í kvöld. Andrea Pirlo skoraði eina mark leiksins á 71. mínútu en Fiorentina missti mann af velli með rautt spjald. Juventus vann samanlagt, 2-1.Lyon er komið áfram með samanlögðum sigri á tékkneska liðinu Viktoria Plzen, 5-3, þrátt fyrir að hafa tapað síðari leiknum í Tékklandi í kvöld, 2-1. Valencia vann svo Ludogorets Razgrad 1-0 í kvöld og 4-0 samanlagt.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn „Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Fótbolti Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Stórstjarnan flytur til Dúbaí í miðju stríði Sport Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Fótbolti Fleiri fréttir „Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Vill að Messi segi sannleikann Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Sjáðu ótrúlega þrennu Valverde í fyrri hálfleik Thelma skoraði og Fanney hélt hreinu í bikarsigri Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Hætti við að sækja um hæli og fór frekar heim til Írans „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Scholes bað Carrick afsökunar „Þær eru öruggar hér og þeim ætti að líða vel“ „Sorgmæddur en stoltur“ Fleury fór á kostum gegn FH Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir? Bæjarar gengu frá Atalanta Sjá meira