Þóra: Þeirra helsti sóknarmaður vill helst ekki spila vörn Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. maí 2014 13:16
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir efsta liði riðilsins, Sviss, í undankeppni HM 2015 ytra á morgun og má búast við erfiðum leik. Þóra B. Helgadóttir, landsliðsmarkvörður, segir góða stemningu í hópnum. „Það er gríðarleg vinnsla og barátta og allir að vonast eftir plássi í byrjunarliðinu. Undirbúningurinn gengur vel og þetta lítur vel út,“ sagði Þóra við Hilmar Þór Guðmundsson, starfsmann KSÍ, eftir æfingu liðsins í dag. Svissneska liðið er langefst í riðlinum en hefur leikið tveimur leikjum fleiri en Ísland. Sóknarleikurinn er þess helsti styrkleiki en liðið er búið að skora 28 mörk í sex leikjum. Er markvörðurinn hræddur við þá tölfræði? „Nei, ekkert meira en varnarmenn. Þeirra styrkleiki er sóknarleikurinn en þær hafa sína veikleika líka. Okkar plan er að loka á þeirra styrkleikum og ráðast á þeirra veikleika. Freyr er búinn að vinna þeirra veikleika og vonandi gengur það upp,“ segir Þóra en hverjir eru veikleikarnir? „Þær eru svo skiptar. Þær sækja á svo mörgum og svo kemur hola í miðjunni. Við munum reyna að nýta okkur það. Ég þekki þeirra helsta sóknarmann mjög vel og henni finnst ekkert rosalega gaman að vinna heim í vörn. Við munum nýta okkur það og skilja hana eftir.“ Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Handbolti Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ Fótbolti „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Fótbolti Fleiri fréttir Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Sjá meira