Heilsa

Búðu til þinn eigin svitalyktareyði

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Mynd/Getty
Margir hafa áhyggjur af óæskilegum eiturefnum í snyrtivörum. Svitalyktareyðar eru þekktir ofnæmisvaldar og innihalda oftar en ekki eiturefni sem talin eru geta valdið sjúkdómum.

Hér kemur auðveld og fljótleg uppskrift af svitalyktareyði sem hægt er að búa til heima hjá sér og er án áls og parabena.



Það sem þarf í svitalyktareyðinn:


  • 1/4 bolli lífræn kókosolía
  • 1/4 bolli matarsódi
  • 1/8 bolli maizenamjöl
  • 1/8 bolli örvarrótarduft (fæst í flestum heilsubúðum)
  • Ilmkjarnaolía eftir smekk.
Hellið kókosolíunni, maizenamjölinu, matarsódanum og örvarrótarduftinu í skál. Blandið vel saman og bætið svo við þremur dropum af uppáhalds ilmkjarnaolíunni ykkar.

Þá er maukið sett í tómar umbúðir utan af svitalyktareyði eða annað ílát eftir hentisemi og sett inn í ísskáp í 15 mínútur. Þá er heimatilbúni svitalyktareyðirinn tilbúinn til notkunar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×