Rasmus lék þrjú sumur með ÍBV frá 2010-2012 við góðan orðstír og var gerður að fyrirliða liðsins, en hann hefur spilað undanfarin tvö ár með norska B-deildarliðinu Ull/Kisa.
„Hann er einn af nokkrum sem við erum að skoða. Þetta mál er bara í athugun. Meira get ég ekki sagt um þetta á þessari stundu,“ segir BjarniGuðjónsson, nýráðinn þjálfari KR, í samtali við Vísi.
Rasmus er góðvinur Stefáns Loga Magnússonar, markvarðar KR, en þeir spiluðu saman hjá Ull/Kisa í fyrra.

Daninn varð fyrir því óláni að slíta krossband í sumar og fór í aðgerð í maí. Hann sagði við Vísi í sumar að draumur hans væri að fara í betri deild, en möguleiki væri að koma aftur til Íslands til að koma sér aftur í gang.
„Það er alveg möguleiki að fara aftur til Íslands. Það er kannski fín hugmynd til að fá hnéð aftur í gang. Ef maður getur byrjað að æfa í janúar og tímabilið hefst ekki fyrr en í maí hentar það vel til að passa að krossbandið sé í lagi. Mér líst líka vel á að koma aftur til Íslands. Ég þekki mikið af fólki þar og líður vel á Íslandi,“ sagði Rasmus Christiansen við Vísi.
Þá ætlar Bjarni Guðjónsson einnig að telja Guðmundi Reyni Gunnarssyni, vinstri bakverði KR, hughvarf um að hætta í fótbolta. Guðmundur gaf það út að ferlinum væri lokið undir lok tímabilsins og fékk hálfgerðan kveðjuleik í lokaumferðinni.
„Ég heyri í Mumma eftir helgina. Hann verður með. Það hlýtur bara að vera,“ segir Bjarni Guðjónsson.