Körfubolti

Rubio meiddur | Mikið áfall fyrir Minnesota

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rubio verður frá á næstunni.
Rubio verður frá á næstunni. Vísir/AFP
Spænski leikstjórnandinn Ricky Rubio hjá Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.

Rubio sneri sig á ökkla í leik Minnesota og Orlando Magic aðfaranótt laugardags og þurfti að yfirgefa völlin af þeim sökum.

Ekki er vitað nákvæmlega hversu lengi Spánverjinn verður frá en meiðsli hans verða skoðuð nánar síðar í mánuðinum.

Aðeins nokkrir dagar eru liðnir síðan Rubio gerði nýjan fjögurra ára samning við Minnesota að verðmæti 55 milljóna dollara.

Rubio varð aðalstjarna Úlfanna eftir brotthvarf Kevins Love og ljóst er að fjarvera leikstjórnands knáa setur stórt strik í reikning Minnesota sem hefur ekki komist í úrslitakeppnina síðan árið 2004.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×