Körfubolti

Minntust stuðningsmanns sem lést á vellinum

Leikmaður Blazers í Sandy-bol fyrir leik.
Leikmaður Blazers í Sandy-bol fyrir leik. vísir/getty
Leikmenn og starfsmenn Portland Trail Blazers heiðruðu í fyrradag minningu konu sem lést á leik liðsins í síðustu viku.

Hin 67 ára gamla Sandy Zickefoose fékk hjartaáfall á leik Portland og Dallas síðasta fimmtudag og lést.

Hún og eiginmaður hennar höfðu verið ársmiðahafar hjá Portland síðan árið 2011 og misstu nánast aldrei af leik hjá liðinu.

Á sunnudag var fyrsti leikur Portland á heimavelli síðan Sandy lést. Allir sem tengdust Blazers á vellinum voru í klæðnaði merktum Sandy til að heiðra minningu hennar.

Mínútuþögn var fyrir leikinn og rauð rós var lögð í sætið hennar Sandy í stúkunni. Blazers spilaði síðan vel í leiknum og vann leikinn fyrir Sandy.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×