Körfubolti

Barkley má byrja að borða á nýjan leik

Barkley kann þá list vel að æsa menn upp.
Barkley kann þá list vel að æsa menn upp. vísir/getty
Charles Barkley gerði leikmenn LA Lakers brjálaða fyrir helgi er hann sagðist ætla að fasta þar til Lakers ynni sinn fyrsta leik á tímabilinu.

Barkley fékk sér væntanlega drjúgan morgunverð í dag því Lakers vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í nótt.

Ed Davis, leikmaður Lakers, lét það verða sitt fyrsta hlutverk eftir leikinn að senda Barkley sneið á Twitter.

„Charles. Feita rassgatið þitt getur fengið að borða núna," skrifaði Davis en liðsfélagi hans, Jeremy Lin, var ívið kurteisari á Twitter og skrifaði að loksins gæti Chuck fengið að borða.

Ekki er vitað hvort Barkley hafi fastað alla dagana en hann ætlaði eingöngu að lifa á vatni og vodka.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×