Körfubolti

Kobe búinn að skora meira en Jordan | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kobe Bryant gengur ánægður af velli í nótt.
Kobe Bryant gengur ánægður af velli í nótt. vísir/getty
Kobe Bryant, skotbakvörður Los Angeles Lakes, skoraði 26 stig í 100-94 sigri Lakers gegn Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í körfubolta á útivelli í nótt.

Hann er þar með búinn að skora 32,310 stig í NBA-deildinni á löngum og farsælum ferli, en með stigunum í nótt fór hann upp fyrir sjálfan Michael Jordan í þriðja sæti yfir stigahæstu leikmenn NBA frá upphafi.

Kobe er nú 4.618 stigum á eftir Karl Malone, sem er í öðru sæti listans, og þarf að spila 185 leiki til viðbótar til að ná honum ef miðað er við að Kobe skori 25 stig að meðaltali í leik.

Þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik setti Kobe niður tvö vítaskot sem komu honum yfir Jordan, en hann þurfti níu stig í nótt til að komast pall með Kareem Abdul Jabbar (38.387) og Karl Malone.

Lakers er nú búið að vinna þrjá leiki í röð og rífa sig upp úr kjallaranum í vestrinu, en liðið er búið að vinna átta leiki og tapa sextán.

Kobe Bryant fer fram úr Jordan:


Golden State Warriors vann 16. leikinn í röð í nótt þegar liðið lagði New Orleans Pelicans, 128-122, í framlengdum leik í New Orleans í nótt.

Stephen Curry skoraði 34 stig fyrir gestina, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar og félagi hans Klay Thompson skoraði 29 stig. Bakverðir Golden State halda áfram að spila eins og þeir sem valdið hafa.

Tyreke Evans var virkilega flottur í liði heimamanna og skoraði 34 stig auk þess sem hann tók 8 fráköst og Jrue Holiday bætti við 30 stigum og 9 stoðsendingum.

Oklahoma City Thunder er einnig komið á góðan skrið í vestrinu, en liðið vann Phoenix Suns, 112-88 í nótt. Þetta var sjötti sigur liðsins í röð og er það nú aðeins einum sigri frá áttunda sætinu.

Russell Westbrook (28 stig, 8 fráköst, 8 stoðsendingar) og Kevin Durant (23 stig, 8 fráköst) voru allt í öllu hjá heimamönnum.

Toronto heldur efsta sæti austurdeildarinnar eftir sigur á New York í nótt, en Washington og Chicago sem eru í baráttunni á toppnum í austrinu unnu líka.

Úrslit næturinnar:

New Orleans Pelicans - Golden State Warriors - 122-128

Miami Heat - Chicago Bulls 75-93

Utah Jazz - Washington Wizards 84-93

Minnesota Timberwolves - Los Angeles Lakers 94-100

Oklahoma City Thunder - Phoenix Suns 112-88

New York Knicks - Toronto Raptors 90-95

Denver Nuggets - San Antonio Spurs 91-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×