Körfubolti

Magic vill að Lakers tapi öllum sínum leikjum

Magic Johnson.
Magic Johnson. vísir/getty
Lakers-goðsögnin Magic Johnson er farinn að vonast eftir því að Lakers tapi hverjum einasta leik í NBA-deildinni í vetur.

Ástæðan er ekki sú að Lakers sé illa við félagið heldur vill hann að félagið komust í betri stöðu fyrir næsta nýliðaval. Það er þegar orðið ljóst að Lakers mun ekkert gera í vetur og því sé allt eins gott að vera lélegasta liðið að mati Magic.

Lakers var með næstlélegasta árangur deildarinnar fyrir síðustu nótt en þá vann liðið síðan þriggja stiga sigur á Sacramento.

Koe Bryant, stjarna Lakers, vildi ekki gagnrýna Magic fyrir sín ummæli.

„Hann er að horfa á stöðuna út frá sjónarhorni eigandans enda var hann einn af eigendum félagsins. Ég vona að sumir stuðningsmennirnir skilji því hvað hann sé að spá. Ég skil hvað hann er að fara," sagði Kobe.

„Hann er einn mesti keppnismaður allra tíma og vill aldrei tapa. Ég veit samt hvað hann er að spá í en ég sé samt ekkert lið fara að tapa leikjum viljandi."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×