Spá rólegu veðri um jólin Samúel Karl Ólason skrifar 23. desember 2014 14:00 Samkvæmt spádeild Veðurstofu Íslands er von á hinu rólegasta og fínasta veðri fyrir jólin. Vísir/Vilhelm
Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum en hálkublettir eru á Sandskeiði. Mjög víða á Suðurlandi er hálka. Á Vesturlandi er hálka og snjóþekja á flestum vegum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Klettsháls og á Hálfdán. Flughálka er í kringum Hólmavík og í vestanverðum Hrútafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Öxnadalsheiði hefur verið opnuð en þar er þæfingsfærð og enn er verið að hreinsa. Flughálka er í Köldukinn og við Vopnafjörð. Snjóþekja og skafrenningur er á Vatnskarði en þæfingur og skafrenningur á Þverárfjalli. Snjóþekja eða hálka og éljagangur er annars mjög víða á Norðurlandi. Samkvæmt spádeild Veðurstofu Íslands er von á hinu rólegasta og fínasta veðri fyrir jólin. „Það mun væntanlega vera kærkomin hvíld fyrir landann miðað við það sem gekk á í desember,“ segir vakthafandi veðurfræðingur í samtali við Vísi. Um mest allt land verður rólegt og kalt, en von er á einhverri snjókomu. „Flestir ættu að fá nokkuð jólalegan snjó í þessum hæga vindi.“ Þegar nær dregur áramótum gæti orðið viðsnúningur á veðrinu. Vindurinn gæti snúið sér í sunnanátt með hlýindum, rigningu og hláku. Þó er um langtímaspá að ræða sem gæti breyst. Hægt er að fylgjast með færð á vef Vegagerðarinnar og veðri á vef Veðurstofu Íslands.
Veður Mest lesið Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Veður Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Innlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Fleiri fréttir Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sjá meira