Klaufabárðar í Tékklandi

Heilt yfir var sigur Tékka sanngjarn þó svo að Kolbeinn Sigþórsson hafi komist í gott færi skömmu eftir mark Ragnars og þá skaut Gylfi Þór Sigurðsson í stöng í síðari hálfleik. En Tékkar náðu að yfirspila Ísland á miðjunni og sköpuðu sér mun fleiri hættuleg færi. Sigur þeirra var verðskuldaður. Það var þó mögnuð stund er Ragnar skoraði fyrir Ísland strax á áttundu mínútu en þeir rúmlega 700 Íslendingar sem voru á vellinum trylltust. Það sló þögn á heimamenn.
Tékkar létu þó ekki slá sig út af laginu og voru áfram sterkari aðilinn. Fyrir markið höfðu þeir skapað sér tvö góð færi og pressan hélt áfram eftir að Ragnar skoraði. Tékkar sóttu grimmt á Theodór Elmar en voru annars óhræddir við að þrýsta íslenska liðinu langt aftur að eigin marki. Tékkar voru kvikir, beittu stuttum sendingum og tókst oftar en ekki að riðla skipulagi íslenska varnarleiksins.
Ólíkt leiknum gegn Hollandi, þar sem andstæðingurinn var mun meira með boltann, gekk Tékkum vel að skapa sér hættu við íslenska markið. En þó svo að það hafi legið mun meira á Íslandi í fyrri hálfleiknum náðu strákarnir að skapa sér stórhættulegt færi undir lok fyrri hálfleiks. Frábær undirbúningur Ara Freys og Birkis skapaði færið fyrir Kolbein en lúmskt skot hans lak rétt svo fram hjá markinu.
Þrátt fyrir allt leit út fyrir að okkar menn myndu sleppa með 1-0 forystu inn í hálfleik. En það átti ekki að verða. Kári var dæmdur brotlegur rétt utan teigs og frábærlega vel útfærð aukaspyrna skilaði marki fyrir Kaderábek sem varð fyrstur til að koma boltanum fram hjá Hannesi Þór í undankeppninni. Hann hafði haldið markinu hreinu í 315 mínútur.
Heimamenn héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og enn og aftur herjuðu þeir á hægri vænginn í íslensku vörninni. Það bar árangur á 61. mínútu er fyrirgjöf Tékka fór af Jóni Daða og í mark Íslands. Einkar klaufalegt.
Tékkarnir voru komnir á bragðið og héldu áfram að sækja stíft. Strákarnir voru þó næstum búnir að svara fyrir sig eftir markið er Gylfi Þór skaut í stöng en allt kom fyrir ekki.
Tékkar tóku fótinn af bensíngjöfinni eftir því sem leið á leikinn og gerðu sitt skynsamlega. Þrátt fyrir dugnað og vilja okkar manna gekk illa að ógna marki Tékkanna sem virtust líklegri til að bæta við ef eitthvað var. Jóhann Berg komst þó nálægt því að skora seint í leiknum en Cech varði frá honum af stuttu færi.
Eftir magnaða byrjun Íslands í undankeppni EM 2016 varð klaufalegt sjálfsmark strákunum að falli. Með smá heppni hefði leikurinn getað þróast á allt annan hátt hefði Kolbeinn skorað í stöðunni 1-0 en það verður þó ekki annað sagt en að sigur vel spilandi Tékka hafi verið fyllilega sanngjarn.
Það var þó vitað að liðið færi sennilega aldrei taplaust í gegnum heila undankeppni og án þess að fá á sig mark þar að auki. Strákarnir geta þó mun betur en þeir sýndu í þessum leik og hafa gert svo oft áður.
Tengdar fréttir

Hannes: Sorgleg mörk að fá á sig í jafn stórum leik
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, var að vonum svekktur eftir 1-2 tap gegn Tékklandi í kvöld.

Rosicky: Jöfnunarmarkið vendipunkturinn
Tomas Rosicky átti stórleik á miðjunni hjá Tékklandi í dag.

Einkunnir strákanna: Aron bestur en Elmar slakastur
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var besti leikmaður karlalandsliðs Íslands í 2-1 tapinu gegn Tékkum.

Jón Daði: Kem eflaust út eins og skúrkurinn
Jón Daði Böðvarsson var skiljanlega vonsvikinn eftir 1-2 tap gegn Tékklandi í dag en hann skoraði óheppilegt sjálfsmark í leiknum sem reyndist vera sigurmark leiksins.

Grátlegt tap í Tékklandi | Myndir
Strákunum okkar var komið niður á jörðina í Plzen í kvöld.

Gylfi: Fórum aldrei almennilega í gang
"Við viljum vera betri og skora fleiri mörk,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson.

Theódór Elmar: Er óánægður með eigin frammistöðu
Einstaklingsmistök gerðu það að verkum að leikskipulag íslenska landsliðsins gekk ekki upp í naumu tapi gegn Tékklandi í kvöld að mati Theódórs Elmars, leikmanns íslenska landsliðsins.

Kolbeinn: Enginn að væla ef við nýtum færin
Kolbeinn Sigþórsson segir að leikmenn íslenska landsliðsins verði að líta í eigin barm.

Sjáðu fagnaðarlætin úr íslensku stúkunni | Myndband
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Ragnar Sigurðsson skoraði fyrsta mark leiksins í kvöld beint fyrir framan stuðningsmenn íslenska landsliðsins.

Lagerbäck: Ég á stóran þátt í tapinu
Lars Lagerbäck segir að þjálfarar íslenska liðsins hefðu átt að undirbúa sína menn betur.

Heimir: Engin ró og miðjan komst aldrei inn í leikinn
Landsliðsþjálfarinn viðurkenndi fúslega að Tékkar voru betri í leik liðanna í Plzen í kvöld.

Aron Einar: Erum enn í bullandi séns
Aron Einar segir Ísland enn vera í bullandi séns að fara til Frakklands.

Kári: Þeir voru bara betri en við
Miðvörðurinn svekktur eftir tapið gegn Tékklandi í kvöld.

Ragnar: Verður einhvern tímann að tapa
Ragnar Sigurðsson, miðvörður Íslands, var hundfúll í leikslok, en Ragnar skoraði mark Íslands gegn Tékklandi í kvöld.