Körfubolti

Dóttir framkvæmdastjóra Lakers látin

Mitch Kupchak ásamt Byron Scott, þjálfara Lakers.
Mitch Kupchak ásamt Byron Scott, þjálfara Lakers. vísir/getty
Starfsmenn LA Lakers eru í sárum eftir að 15 ára dóttir framkvæmdastjóra félagsins lést.

Alina Kupchak hafði lengi barist við veikindi og lést vegna veikindanna í gær.

Lakers sendi frá sér yfirlýsingu í gær fyrir hönd föðurins og framkvæmdastjóra Lakers, Mitch Kupchak, þar sem fráfall Alinu var staðfest og fjölskyldan bað í leiðinni um að fá að syrgja í friði.

Lakers-goðsagnirnar Magic Johnson og Kobe Bryant sendu báðir samúðarkveðjur til fjölskyldunnar í gegnum Twitter í gær.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×