Aron Rafn: Gaui er búinn að tala um að hann geti þetta ennþá Arnar Björnsson í Katar skrifar 19. janúar 2015 16:15 Aron Rafn Eðvarðsson með félögum sínum í landsliðinu. Vísir/Eva Björk
Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson stóð sig mjög vel þegar hann kom inná í leiknum gegn Alsír í gær. Hann varði 6 af 9 skotum á lokakaflanum þegar Íslendingar náðu að sigla sigrinum í höfn. Aron Rafn bíður spenntur eftir leiknum við Frakka en Arnar Björnsson hitti á hann í dag. „Ef við ætlum að byrja eins og við byrjuðum í gær, þá verður þetta erfiður leikur. Við hlökkum til að spila þennan leik því það er alltaf gaman að spila á móti þeim," segir Aron Rafn. Er Aron Rafn eitthvað farinn að stúdera franska liðið? „Já en það er ekki langt síðan að síðasti leikur kláraðist og við þurfum fyrst að melta hann en við byrjuðum að kíkja aðeins á þá í gærkvöldi“. Hvaða skot viltu ekki fá á þig? „Þetta er erfið spurning. Þeir eru með hörkugóða leikmenn í öllum stöðum og það skiptir ekki máli hvaða leikmenn eru að spila. Þannig að það er eiginlega ekki hægt að svara þessari spurningu," segir Aron. Hvernig var að sitja á bekknum í gærkvöldi og horfa á markatöluna, 0-6? „Ég var nú bara furðu rólegur held ég. Við vorum búnir að klúðra hverju dauðafærinu á fætur öðru og markvörður Alsír var að verja eða öllu heldur að skjóta í hann. Svo skutum við framhjá og langt yfir en ég vissi að þetta myndi koma. Það er ekki gott að eiga góða byrjun og slæman endi. Við sýndum að við vorum slæmir í byrjun en góðir í lokin og unnum öruggan sigur," segir Aron Rafn. Aron er sammála því að liðið megi ekki byrja jafn illa gegn Frökkum á morgun. „Það er mjög mikilvægt að byrja vel og halda það út leikinn, sérstaklega á móti liði eins og Frökkum sem eru duglegir að refsa," segir Aron. Getur Karabatic skotið ennþá á markið? „Já Gaui er búinn að tala um að hann geti þetta ennþá en það verður að koma í ljós á morgun," sagði Aron Rafn en það má sjá allt viðtal Arnars Björnssonar við hann með því að smella hér fyrir neðan.
HM 2015 í Katar Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira