Sverre: Áður fyrr fór ég þetta á ákefðinni en núna meira á reynslunni Arnar Björnsson í Katar skrifar 15. janúar 2015 22:30 Sverre Jakobsson. Vísir/Ernir
Varnarjaxlinn Sverre Jakobsson tekur núna þátt í sínu síðasta stórmóti, hann segir að hlutverk hans í liðinu sé að sjá til þess að boltinn fari sem sjaldnast í mark mótherjanna. Þegar hann er spurður að því hvort hann sé undir það búinn að vera annað hvort lofaður í hástert eða rakkaður niður svarar hann játandi. „Er þetta ekki alltaf svona ár eftir ár í janúar, maður þarf að búa sig undir þetta bæði andlega og líkamlega en er orðinn vanur þessu“. Í aðdraganda mótsins í Katar hefur Aron þjálfari lagt áherslu á varnarleikinn, hvernig líst Sverre á þær áherslur? „Bara nokkuð vel, við erum á góðri leik með varnarleikinn. Þetta er framtíðarsýn þjálfarans og verður væntanlega varnarleikur okkar á næstu árum. Það þýðir að ég fæ ekki að taka þátt í þessu eins mikið og ég vildi. En það er gott að koma með aukavopn í varnarleikinn og vera ekki eingöngu að spila 6-0 vörn. Við með flotta leikmenn sem skilja þetta vel og margir þeirra spila þennan varnarleik með sínum félagsliðum. Sverrir hefur oft verið rekinn útaf í leikjum með landsliðinu en hann segir það ekki halda fyrir sér vöku. „Ég hugsa aldrei um það í leikjum hvort ég fái tveggja mínútna brottvísun. Áður fyrr var maður að fara þetta á ákefðinni en núna meira á reynslunni," segir Sverre. Þegar Sverre er beðinn um samanburð á þessu liði og á öðrum mótum segir hann að slíkur samanburður sé erfiður. „Þessi hópur er búinn að vera saman í ein 10 ár, reynslan er orðin mikil og sumir hverjir fara brátt að hætta að spila með liðinu eins og ég. En mér finnst liðið alltaf gott fyrir öll stórmót“, segir þessi brosmildi risi sem er búinn að standa lengi í slagnum en leggur landsliðskóna á hilluna eftir mótið í Katar.
HM 2015 í Katar Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira