Körfubolti

Toronto varð undir Detroit-vagninum | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Amir Johnson í baráttunni við Andre Drummond.
Amir Johnson í baráttunni við Andre Drummond. vísir/getty
Detroit Pistons heldur áfram á sömu braut og undanfarnar vikur í NBA-deildinni í körfubolta, en liðið vann næst efsta lið austurdeildarinnar, Toronto Raptors, 114-111, á útivelli í nótt.

Detroit hefur verið á mikilli siglinu síðan liðið lét Josh Smith fara, en það er nú búið að vinna níu leiki af síðustu tíu og er, eftir skelfilega byrjun í deildnini, aðeins tveimur sigrum frá úrslitakeppninni.

Brandon Jennings var frábær í liði Detroit í nótt og skoraði 34 stig auk þess sem hann gaf 10 stoðsendingar, en hann var með 50 prósent skotnýtingu jafnt inn í teignum sem utan hans.

Greg Monroe bætti við 22 stigum og 10 fráköstum og inn í teignum var Andre Drummond með tvennu upp á 10 stig og 14 fráköst. Hann átti þó í vandræðum með miðherjann Jonas Valanciunas sem skoraði 31 stig og tók 12 fráköst fyrir heimamenn.

Brandon Jennings fer á kostum:


Orlando vann óvæntan útisigur á Chicago Bulls, 121-114, en fyrir sigurinn í nótt var Orlando búið að tapa sex leikjum í röð.

Miðherjinn Nikola Vucevic fór á kostum og skoraði 33 stig og tók 11 fráköst, en hann fór á köflum ansi illa með stóra og sterka stráka Chicago-liðsins. Victor Oladipo skoraði einnig 33 stig.

Hjá Chicago var Pau Gasol með 28 stig og 14 fráköst, en Spánverjinn hefur gengið í endurnýjun lífdaga hjá Bulls og verið hreint frábær á leiktíðinni, sérstaklega í undanförnum leikjum.

Chicago er í fjórða sæti austurdeildarinnar en Orlando 13. af 15 liðum. Houston Rockets vann útisigur gegn Brooklyn í nótt og styrkti stöðu sína í þriðja sæti vestursins og þá lagði Boston lið New Orleans á heimavelli.

Úrslit næturinnar:

Boston Celtics - New Orleans Pelicans 108-100

Brooklyn Nets - Houston Rockets 99-113

Toronto Raptors - Detroit Pistons 111-114

Chicago Bulls - Orlando Magic - 114-121

Staðan í deildinni.

Marcus Smart með dónalega stoðsendingu: Jae Crowder hirðir boltann með tilþrifum:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×