Kona var hætt komin þegar stór jeppi fór útaf veginum, niður bratta skriðu og hafnaði í fjörunni við Óseyrarbrekku í Stöðvarfirði snemma í morgun. Konan var ein í bílnum og þótt ótrúlegt megi virðast þá sakaði hana ekki samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Fjarðarbyggðar.
Sjúkrabílar frá Fáskrúðsfirði og Breiðdal var kallað út auk slökkviliðs og var konan flutt á heilsugæslustöð til athugunar. Ástand hennar var gott en um tuttugu metrar eru frá veginum og niður í fjöruna að sögn fulltrúa slökkviliðsins.
Um klukkustund síðar hafnaði annar bíl utan vegar. Sá bíll fór þó upp fyrir veg. Afar hvasst hefur verið á þessum slóðum auk þess sem hált er á vegum.
Slapp með skrekkinn þegar jeppi fór niður bratta skriðu og út í fjöru

Tengdar fréttir

Óveður á Kjalarnesi: Sendibíll á hliðina
Sendibíll valt og hafnaði utan vegar í hviðum sem hafa náð allt að 30-40 m/s fyrir hádegi. Tvennt var í bílnum en sakaði ekki.