Óveður á Kjalarnesi: Sendibíll á hliðina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2015 11:14 Bíllinn á Kjalarnesi. Vísir/SFÞ
Sendibíll valt og hafnaði utan vegar í hviðum sem hafa náð allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi fyrir hádegi. Afar hvasst hefur verið á Kjalarnesi framan af degi þar sem í raun er óveður. Tvennt var í bílnum en sambland af hvassviðri og hálku varð til þess að bíllinn hafnaði utan vegar. Engan sakaði samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Reiknað er með að það geti verið hvasst fram yfir hádegi á Kjalarnesi. Sömuleiðis er afar hvasst á sunnanverðu Snæfellsnesi sem og suðaustanlands í norðanátt beggja vegna Hornafjarðar. Þar er reiknað með að hvassast verði yfir miðjan daginn samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja víðast hvar á Suðurlandi. Á Vesturlandi er víða hálka eða snjóþekja en ófært á Fróðárheiði og þæfingsfærð og skafrenningur á Holtavörðuheiði. Flughálka og óveður er á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Útnesvegi.Frá Kjalarnesi í morgun.Vísir/SÓKSnjóþekja eða þæfingur og skafrenningur er víða á Vestfjörðum en ófært er á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði en þar er verið að hreinsa. Ófært er einnig á Klettshálsi og mokstri hætt í bili vegna stórhríðar. Þungfært er í Kollafirði á Ströndum og flughálka á vegum í nágrenni Hólmavíkur. Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og víða skafrenningur og snjókoma í Skagafirði og Eyjafirði. Þæfingsfærð og stórhríð er á Öxnadalsheiði. Ófært á Fjarðarheiði og Oddskarði og beðið með mokstur vegna veðurs. Þæfingsfærð er á Vopnafjarðarheiði en annars er víða snjóþekja á vegum á Austurlandi og skafrenningur á fjallvegum. Hálka er með suðausturströndinni frá Höfn og áfram suður.
Veður Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Þrettán þúsund hafa skrifað undir Innlent Fleiri fréttir Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Sjá meira