Tap hjá Patreki sem mætir Katar í 16-liða úrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar 23. janúar 2015 17:39 Úr leiknum í kvöld. Vísir/Eva Björk
Austurríki mætir heimamönnum í Katar í 16-liða úrslitum HM í handbolta en það varð ljóst eftir tap fyrrnefnda liðsins gegn Makedóníu í lokaumferð B-riðils í dag. Staðan var jöfn að loknum fyrri hálfleik, 16-16, en Makedónía tók snemma völdin í þeim síðari og vann nokkuð þægilegan sigur að lokum, 36-31. Katar mætti Hvíta-Rússlandi í A-riðli á sama tíma og vann sigur, 26-22. Heimamenn voru þó öruggir með annað sæti riðilsins fyrir leikinn. Makedónía mætir því Slóveníu í 16-liða úrslitum en síðarnefnda liðið hafnaði í þriðja sæti A-riðils. Eftir sigur Túnis á Íran fyrr í dag var ljóst að Austurríki mátti ekki tapa með meira en þrettán marka mun og var aldrei hætta á því. Stærra tap hefði þýtt að Austurríki hefði dottið niður í fjórða sæti B-riðils og mætt heimsmeisturum Spánar í 16-liða úrslitum. Makedónía byrjaði betur í leiknum en lærisveinar Patreks eru seigir og héldu í við andstæðinginn. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 16-16 og Austurríkismenn tóku frumkvæðið á upphafsmínútum síðari hálfleiksins. En leikurinn snerist við þegar Vytautas Ziura fékk að líta rauða spjaldið fyrir að slá í andlit andstæðings. Króatar komust yfir á ný og létu forystuna ekki af hendi eftir það. Austurríkismenn áttu bæði í vandræðum með varnarleik og markvörslu Makedóníu og dómgæslu danska dómaraparsins, þar sem lærisveinar Patreks létu ítrekað reka sig af velli í tvær mínútur. Makedóníumenn gengu á lagið og náðu sex marka forystu, 29-23, þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka og sigldu nokkuð öruggum sigri í höfn. Kiril Lazarov var markahæstur í liði Makedóníu með níu mörk en hornamaðurinn Robert Weber hjá Austurríki með átta. Króatía vann B-riðil með fullu húsi stiga eftir öruggan sigur á Bosníu, 28-21, í kvöld.
HM 2015 í Katar Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira