Brasilía og Túnis tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2015 15:36 Vísir/AFP
Brasilía (A-riðill) og Túnis (B-riðill) urðu í dag síðustu liðin í sínum riðlum til þess að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á HM í handbolta í Katar. Túnisbúar höfðu ekki mikið fyrir sigri á Íran en það reyndi meira á Brasilíska liðið. Um leið er ljóst að Hvíta-Rússland og Bosnía komast ekki í sextán liða úrslitin og eru þess í stað á leiðinni í Forsetabikarinn ogBrasilíumenn unnu átta marka sigur á Síle í Suður-Ameríku slag í A-riðlinum, 30-22, en með því er ljóst að Hvít-Rússar komast ekki í sextán liða úrslitin þó að þeir vinni Katar á eftir. Sílemenn komust nokkrum sinnum þremur mörkum yfir í fyrri hálfleiknum en voru bara einu marki yfir í hálfleik, 13-12. Síle-liðið var síðast yfir í leiknum í stöðunni 19-18 þegar 19 mínútur voru eftir. Brasilíumenn gáfu þá í og unnu síðustu 19 mínútur leiksins 12-4 og þar með leikinn með átta mörkum.Túnis vann sjö marka sigur á Íran, 30-23, en hefði helst þurft stærri sigur til að auka líkurnar á því að taka þriðja sæti riðilsins af lærsveinum Patreks Jóhannessonar í Austurríki fari svo að austurríska liðið tapi á móti Makedóníu á eftir. Bosníumenn áttu möguleika á að ná fjórða sætinu af Túnis en aðeins ef Túnisbúar töpuðu leiknum sínum við Íran. Það var þó aldrei líklegt enda íranska liðið langlélegasta liðið í riðlinum. Íranar náðu reyndar að vinna upp fimm marka forskot og jafna metin í 12-12 fyrir hálfleik en Túnisbúar skoruðu sjö fyrstu mörk seinni hálfleiksins og litu ekki til baka eftir það. Bosníumenn, sem slógu Ísland út úr umspilinu fyrir heimsmeistarakeppnina í júní í fyrra eru því á leiðinni í Forsetabikarinn þar sem þeir mæta Hvít-Rússum í fyrsta leiknum í baráttunni um 17. sæti heimsmeistaramótsins.
HM 2015 í Katar Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira